Mik­ill hiti var bæði í leik­mönn­um og þjálf­ur­um

Val­ur sótti þrjú stig til Eyja í gær þegar þær unnu 3:1-sig­ur á ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna í knatt­spyrnu. Eyjakonur komust þó fljótlegar yfir þegar Emma Kelly skoraði á fjórðu mínútu. ÍBV hélt for­skot­inu allt fram á 39. mín­útu Valur jafnaði met­in eft­ir horn­spyrnu. Á loka­mín­útu fyrri hálfleiks komst svo Val­ur yfir með sjálfs­marki, aft­ur eft­ir horn­spyrnu. Það var svo fimm mín­út­um fyr­ir leiks­lok sem Mar­grét Lára Viðars­dótt­ir inn­siglaði 3:1-sig­ur Vals. ÍBV eru núna í fjórða sæt­inu með níu stig eft­ir fyrstu sjö leik­ina.

„Ég er mjög svekkt­ur og þetta eru ódýr mörk sem við fáum á okk­ur og lítið við því að gera,“ sagði Jón Ólaf­ur Daní­els­son, þjálf­ari kvennaliðs ÍBV í knatt­spyrnu við mbl.is eftir leikinn í gær. En mik­ill hiti var bæði í leik­mönn­um og þjálf­ur­um í leikn­um og Jón Ólaf­ur fékk sem dæmi gult spjald. „Maður er nátt­úru­lega ekki með góðar minn­ing­ar frá bikarleikn­um hér um dag­inn, þar sem haft af okk­ur mark og ekki dæmd víta­spyrna, sem var fá­rán­legt. Síðan er Cloé rif­in hérna niður í skynd­isókn og það er ekki veifað gulu spjaldi. Maður hélt að það væri sami dóm­arask­andall að fara í gang og ég ætlaði bara að koma í veg fyr­ir það,“ sagði Jón Ólaf­ur sagði dómgæsluna ekki hafa verið lélega í leiknum og mikill hiti í leiknum.

„Ég var mjög ánægður með allt liðið í dag. Við erum með ung­ar stelp­ur í liðinu. Mark­mann sem er með enga sögu í meist­ara­flokki, við erum með tvo bakverði sem er 15 og 16 ára. Haf­dís Bára byrj­ar á kant­in­um hún er 16 ára og ég var ánægður með liðið. En manni lang­ar að gera bet­ur en það er bara ekki hægt að biðja um það því við erum ekki með reynslu og kunn­áttu í það eins og er,“ sagði Jón Óli.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.