Mikill fjöldi umsókna í uppbyggingarsjóð Suðurlands

Alls bárust sjóðnum 166 umsóknir. Annars vegar umsóknir um styrki til menningarverkefna og hins vegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Mun fleiri umsóknir voru um menningarverkefni að venju eða samtals 99 umsóknir. Fjöldi umsókna um atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna 67. Alls var sótt um rúmar 190 m.kr. Meðal fjárhæð sem sótt var um voru rúmar 1.100 þ.kr., um 1 m.kr. vegna menningarverkefna og um 1.400 þ.kr. vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Til úthlutunar á árinu eru 80 m.kr. og ráðgert að úthluta að þessu sinni um 40 m.kr.

Opnað var fyrir umsóknir fyrstu vikuna í febrúar og opið fyrir umsóknir fram til kl. 16:00 þann 2. mars síðast liðinn eða í um 5 vikur. Haldinn var opinn kynningarfundur í beinu steymi með þátttöku um 50 manns í upphafi umsóknarferils.

Tilkynnt verður um úthlutunina 29. mars með tölvupósti til umsækjenda og listi yfir styrkþega birtur á heimasíðu SASS. Opnað verður fyrir seinna umsóknarferli sjóðsins fyrir árið 2021 í byrjun september með umsóknarfrest til 5. októbers.

Nýjustu fréttir

„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.