Myndir: Uppskeruhátíð í Bókasafninu
7. september, 2025
IMG 7944 2
Frá uppskeruhátíðinni á Bókasafninu. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í gær, laugardaginn 6. september, var haldin uppskeruhátíð Sumarslestursins 2025. Markaði hún jafnframt vetraropnun Bókasafns Vestmannaeyja en fram í maí á næsta ári er opið alla laugardaga kl. 12-15.

Að þessu sinni opnaði safnið ekki fyrr en kl 13 vegna Vestmannaeyjahlaupsins og var því opið til kl. 16 þennan eina dag. Laugardagsopnanir hafa mælst afar vel fyrir og oft hefur verið fullt út úr dyrum enda starfsfólkið óþreytandi við að finna upp á einhverju skemmtilegu.

Þema sumarlesturins að þessu sinni var Nammilandið, enda fá börn (og líka fáir fullorðnir) sem ekki laðast að namminu! Nammilandshúsið á Bókasafninu er orðið víðfrægt og flest börn sem alast upp  í Vestmannaeyjum munu einhvern tíma muna eftir því að hafa skondrast í kringum húsið eða laumast inn í það til að leggjast niður og jafnvel lesa í rólegheitunum.

Á uppskeruhátíðina mættu að þessu sinni um 80 manns, góð mæting en oft hefur blaðamaður verið á staðnum þar sem allt hefur verið stappað með yfir 100 manns. Þau sem komu skemmtu sér hið besta því margt var í boði. Það voru alls kyns leikir í Einarsstofu, föndur inn á Bókasafninu og bingó. Auk þess var popp og glaðningur í boði fyrir börnin undir eftirliti starfsfólks og foreldra.

Fengu börnin stimpil  á hendina eins og á Þjóðhátíð þegar glaðningur hafði verið afhentur og var ekki hægt að ná honum af nema að fara í bað. Vetrardagskrá Bókasafns Vestmannaeyja hófst með þessari dagskrá.

Litlu áður hafði forstöðumaður safnsins, Kári Bjarnason, farið í sína árlegu heimsókn í Hamarsskóla ásamt Drífu Arnardóttur, og afhent þar hverju einasta barni sem var að hefja skólagöngu sitt eigið bókasafnsskírteini.

Þessum árlega viðburði er síðan fylgt litlu síðar eftir með heimsókn á safnið í samstarfi við umsjónarkennara barnanna og markar upphaf af sterku sambandi bókasafns og skóla.

Það er því margt sem Bókasafn Vestmannaeyja gerir til að laða öll börn að bókinni og sannarlega ástæða til að hvetja foreldra að vera dugleg að mæta með börnin sín á safnið. Það er öruggt að starfsfólkið tekur vel á móti barninu þínu.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
8. tbl. 2025
8. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.