Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Einsi kaldi sá um þorramatinn. Hér er hann með matreiðslukennrum sínum, Stellu Skaptadóttur og Unni Tómasdóttur. Ljósmyndir/vsv.is

Endurfundir, góðar minningar og sterk hefð settu svip sinn á þorrablót Vinnslustöðvarinnar í liðinni viku þegar fyrrverandi starfsmenn og makar þeirra komu saman. Fram kemur í frétt á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar að góð mæting hafi verið og nutu nær sjötíu gestir þess að hittast á ný, rifja upp liðna tíð og eiga saman ánægjulega kvöldstund.

Sérstakan svip á blótið setti heimsókn í nýbyggingu fyrirtækisins þar sem gestum gafst kostur á að kynna sér starfsemina sem þar mun fara fram. Byggingin er um 5.600 fermetrar; á neðri hæð verður saltfiskvinnsla en á efri hæð innvigtun uppsjávarafla. Margir höfðu greinilega ánægju af að sjá með eigin augum hvernig starfsemi fyrirtækisins hefur þróast á undanförnum árum.

Kvöldið hófst á hefðbundnum þorramat á meðan myndasyrpa frá Kristjáni Óskarssyni – Stjána á Emmunni var sýnd. Sýning sem vakti bæði ánægju og hlýjar minningar meðal gesta.

Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi starfsmannastjóri Vinnslustöðvarinnar, hefur komið að skipulagningu blótsins frá upphafi. Hann segir hefðina dýrmæta og gleðilegt að sjá hversu vel fyrrverandi samstarfsfélagar mæta ár hvert, en mökum er einnig boðið með.

Blótið á sér nú tæplega áratugar langa sögu. Það var fyrst haldið í Akóges og hefur alla tíð notið góðrar aðsóknar. Að sögn Þórs fer fólk jafnvel að spyrjast fyrir um dagsetninguna strax upp úr jólum.

„Við höfum líka lagt áherslu á menningarleg innslög. Í fyrra var boðið upp á erindi og núna sýndi Stjáni á Emmunni flotta myndasyrpu. Það merkilega við þetta kvöld er að óáfengi bjórinn rennur út. Ég er hræddur um að það hefði lítið farið af honum fyrir svona 20–30 árum,“ segir Þór og brosir.

Að venju svignuðu borðin undan gómsætum þorramat og þótti kvöldið takast afar vel, þar sem stemningin var eins og best verður á kosið. Fleiri myndir frá blótinu má sjá hér.

Sigríður Bragadóttir, Eyjólfur Guðjónsson, Auðbjörg Sigurþórsdóttir og Hjörleifur Friðriksson létu sig ekki vanta á blótið.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.