Karlalið ÍBV leikur fyrsta leik sinn í Pepsídeildinni á sunnudaginn þegar Eyjamenn sækja Selfyssinga heim í Suðurlandsslag Íslandsmótsins. Stuðningsmenn ÍBV bíða spenntir eftir sumrinu og munu vafalaust fjölmenna á leikinn. Þeir sem eru hins vegar í vandræðum með að redda sér fari til og frá Landeyjahöfn, geta komið við á skrifstofu ÍBV í Týsheimilinu klukkan 13:00 á morgun og fengið miða í rútuna.