Bréfberar okkar geta átt erfitt með að komast að húsum og póstkössum þar sem mikill snjór og hálka er til staðar. Gott aðgengi skiptir mjög miklu máli en á mörgum stöðum geta aðstæður verið hættulegar.
Við biðjum því fólk að aðstoða okkur og huga að aðgengi að húsum sínum með því að moka snjó og salta við hús og innkeyrslur. Aðstoð Eyjamanna við bréfbera mun hjálpa Póstinum að koma sendingum örugglega til skila á sem fljótlegastan hátt.