Ný fyrirliðabönd í sölu
Fyrirliðaband
Mynd/aðsend

Þjóðhátíðarnefnd hefur í ár nýtt átak undir heitinu „Er allt í lagi?“ Skilaboðin eru einföld og skýr og til þess ætluð að minna okkur á að gæta að okkur sjálfum og að hvort öðru. Þannig eru gestir hátíðarinnar hvattir til þess að kanna aðstæður óhikað og spyrja einfaldlega „Er allt í lagi?“ Eyjamenn þekkja mikilvægi forvarna á þjóðhátíð og hafa í gegnum áranna rás staðið saman í því að tryggja öryggi gesta eins og best verður á kosið.

Ný fyrirliðabönd hafa verið sett í sölu og hefur sala þeirra gengið afar vel. Eru gestir hátíðarinnar hvattir til þess að skarta fyrirliðaböndum til merkis um ábyrgð okkar allra að berjast gegn ofbeldi. Skemmtikraftar, gæsluaðilar og aðrir starfsmenn hátíðarinnar munu einnig skarta böndunum.

Þeir sem vilja tryggja sér band eru hvattir til að senda skilaboð í gegnum facebook síðuna Þjóðhátíð gegn ofbeldi eða með því að senda tölvupóst á margret.ingolfsdottir@gmail.com

Þjóðhátíðarnefnd leggur mikla áherslu á að hátíðargestir skemmti sér vel og fallega þannig að allir gestir fari til síns heima sáttir og sælir að hátíð lokinni. Ítrekað er að þeir sem að þjóðhátíð koma fordæma allt ofbeldi, munu ávallt gæta að hagsmunum þolanda og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja öryggi hátíðargesta, segir í tilkynningu.

Nýjustu fréttir

Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.