Ný rannsóknartæki á Selfossi og í Vestmanneyjum

Rannsóknastofa HSU á Selfossi hefur í rúm 10 ár verið samtengd rafræna rannsóknakerfinu Flexlab sem LSH heldur utan um og er nú tengd við flestar rannsóknastofur á landinu. Rannsóknarstofan í Vestmannaeyjum hefur ekki búið við þann kost þar sem tækjabúnaðurinn hefur ekki stutt við þessar tengingar. Þetta kemur fram í frétt á vef HSU. Bein rafræn tengin við Flexlab eykur öryggi rannsóknarniðurstaðna og tryggir réttar skráningar í kerfunum. Það er því löngu orðið tímabært að endurnýja tækjakostinn á rannsóknarstofunni í Vestmanneyjum svo hægt verði að koma rafrænum tengingum í notkun.
Nýr tækjabúnaðurinn hefur verið settur upp á Selfossi er af gerðinni Cobas 6000 en tækið er mun öflugra en þau tæki sem það leysir af hólmi. Mikil aukning hefur átt sér stað í rannsóknarfjölda á Selfossi og náði eldri tækjabúnaður ekki með góðu móti að anna þeim rannsóknarfjölda sem bárust rannsóknarstofunni.
Tækjabúnaðurinn sem settur verður upp í Vestmannaeyjum er einnig af gerðinni Cobas og styður við rafræna tengingu við Flexlab. Undirbúningur fyrir breytingunum í Vestmannaeyjum er nú í fullum gangi og standa vonir til að rannsóknartækin verði komin í fulla notkun fyrir 20. febrúar n.k.

 

Nýjustu fréttir

„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.