Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna
19. júní, 2025
Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi.

Kæru Íslendingar, til hamingju með kvenréttindadaginn. Það er merkilegt að hugsa til þess að íslenskar konur hafi verið með þeim fyrstu í Evrópu til að hljóta kosningarétt á þessum degi árið 1915, fyrir 110 árum síðan og því ber að fagna. Enn fremur þykir mér aðdáunarvert að Ísland skuli ennþá tróna á toppi lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir jafnrétti kynjanna í meira en áratug samkvæmt nýjustu skýrslu sem birt var í síðustu viku.

Í tilefni þess ítrekar Evrópusambandið hlutverk sitt og ábyrgð í jafnréttisbaráttu kynjanna, bæði innan Evrópu sem og á heimsvísu. Það er mikilvægt að standa vörð um grundvallarréttindi kvenna og stúlkna ásamt því að tryggja enn betri árangur fyrir komandi kynslóðir. Þrátt fyrir miklar framfarir á síðustu áratugum er enn langt í land. Konur og stúlkur um allan heim þurfa enn að sæta kynbundnu ofbeldi og mismunun á vinnumarkaði sem birtist í formi kynbundins launamismunar og hinu svokallaða glerþaki. Að auki skortir margar konur víðs vegar um heim aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar sem málefni kvenna eru sérstaklega undirfjármögnuð. Á sama tíma stendur heimurinn frammi fyrir bakslagi í baráttunni fyrir mannréttindum og jafnrétti kynjanna.

Réttindi kvenna snerta ekki einungis konur heldur allt samfélagið í heild sinni. Kvenréttindi varða okkur öll þar sem að þátttaka kvenna í þjóðfélaginu er bráðnauðsynleg til að viðhalda góðum lífskjörum og áframhaldandi velmegun. Það er of dýrkeypt að útiloka allt það hugvit og mannafla sem konur veita samfélaginu. Þess vegna hefur ESB gefið út nýjan vegvísi um jafnrétti kynjanna (e. Roadmap for Women´s Rights) í mars sl. til að knýja áfram heildræna stefnu í jafnréttismálum. Síðastliðin ár hafa sýnt mikilvægi þess að bregðast skjótt við áðurnefndri þróun. Í ljósi þess hefur ESB ekki einungis lagt áherslu á framsækni í stefnumótun heldur einnig á að styðja við aðildarríki þess í framkvæmd þeirra. Að auki er mikilvægt að gera ráð fyrir skörun ólíkra vandamála sem konur innan mismunandi þjóðfélagshópa standa frammi fyrir.

Til að tryggja jafnrétti kynjanna er nauðsynlegt að efla þátttöku kvenna á öllum sviðum samfélagsins, þá sérstaklega í öryggis- og varnarmálum en í ár eru 25 ár liðin frá því að Sameinuðu þjóðirnar samþykktu ályktun nr. 1325 um “kynferði, frið og öryggi”. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðastliðinn aldarfjórðung og hefur aldrei verið meira um vopnuð átök í heiminum fyrr en nú þar sem helmingi fleiri konur búa á átakasvæðum. Konur á flótta eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir kynferðisofbeldi á átakasvæðum þar sem þær eru í 96% tilvika fórnarlömb þess. Að auki er mikilvægt að ítreka að margar hverjar konur eru líklegar til að verða fórnarlömb mansals og þvingaðs vændis m.a. til að greiða fyrir nauðsynjavörur. Þrátt fyrir þessa tölfræði hafa konur ennþá afar skerta aðkomu að friðar- og vopnahlésviðræðum.

Þess vegna er mikilvægt að bregðast skjótt við nýrri heimsmynd og auka vitundarvakningu um þátttöku kvenna í öryggismálum. Ég er því stolt að ítreka áherslu og stuðning ESB til þessara málefna og fagna einnig samstarfi Íslands og ESB á þessu sviði. Þetta samstarf byggir fyrst og fremst á sameiginlegum gildum um mannréttindi og jafnréttindi kynjanna. Þessi gildi kristallast í þátttöku Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna sem Ísland var kjörið í síðastliðinn október 2024. Á tímum sem þessum, sem einkennast af ólgu í alþjóðastjórnmálum og aukinni mótspyrnu í jafnréttindabaráttunni af hálfu skipulagðra hreyfinga, er mikilvægt að bandamenn standi þétt saman. Þess vegna tek ég þátttöku Íslands í mannréttindaráði SÞ fagnandi og hlakka til að fylgjast með framvindu þess á komandi árum. Gleðilegan kvenréttindadag.

Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.