Nýtt merki Þjóðhátíðar hannað af Daða
merki_thjodh_2024_st
Nýtt merki Þjóðhátíðar

Skömmu fyrir áramót efndi Þjóðhátíðarnefnd til samkeppni um merki Þjóðhátíðar. Dómnefnd fékk sendar tillögur frá þremur aðilum, að því er segir í frétt á vefsíðu ÍBV.

Nefndin tók sér sinn tíma í að velja, enda tillögurnar allar góðar og merkið í ár nokkuð merkilegt þar sem 150 ár eru frá því að við héldum hátíðina í fyrsta skipti.

Sigurvegarinn í ár er Daði Jóhannes Gylfason. Daði er ættaður frá Eyjum. en býr núna í Lúxemborg. Við settum okkur í samband við Daða og það kom honum nokkuð á óvart að hann skyldi hafa borið sigur úr býtum. Daði segist vera mikill Þjóðhátíðarmaður en það má svo sem segja um alla hans fjölskyldu. Hann hlakkar til að mæta á hátíðina í ár.

Þjóðhátíðarnefnd vill þakka öllum þeim sem tóku þátt og vill óska Daða innilega til hamingju með sigurinn.

Nýjustu fréttir

Mikil gróska í fimleikastarfi og mót fram undan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Nám sem tengir saman skóla, atvinnulíf og samfélag
Draumar æskuáranna rættust
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.