Óbreytt loðnuráðgjöf
Vsv Lodna3
Markmið leiðangursins er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen.

Loðnuleiðangri 5 skipa lauk nú um helgina. Hafís náði yfir stóran hluta rannsóknasvæðis og sýnt þykir að mun minna magn mældist af loðnu en í desember síðastliðinn. Verið er að vinna úr gögnum og stofnmat liggur ekki fyrir en engu að síður er orðið ljóst að ekki verði breyting á ráðgjöf sem byggði á mælingu í desember. Sú mæling leiddi til veiðiráðgjafar upp á 21.800 tonn veturinn 2020/21.

Fyrirhugað er að endurtaka mælingar þegar aðstæður leyfa með tilliti til hafíss, veðurs og útbreiðslu loðnu. Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson munu geta lagt í leiðangur með stuttum fyrirvara og í kjölfarið verður metin þörf á mögulegri aðkomu fleiri skipa.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.