Orkumótinu lauk í gær
Frá fimmtudagsmorgni hafa tæplega þúsund ungir og efnilegir peyjar spilað fótbolta af lífi og sál. Veðrið setti smá strik í reikninginn en strákarnir létu það ekki á sig fá og héldu ótrauðir áfram. Breiðablik 1 sigraði mótið en þeir spiluðu gegn FH í úrslitaleik mótsins.
Til að mót sem þetta gangi upp liggur mikil vinna á bak við og sjálfboðaliðar spila þar stórt hlutverk ásamt styrktaraðilum. Dóra Björk, framkvæmdarstjóri ÍBV kom eftirfarandi skilaboðum á framfæri á Facebook síðu félagsins;
Kæru ÍBV-arar
Takk kærlega fyrir að leggja hönd á plóg við framkvæmd knattspyrnumóta félagsins. Án ykkar sjálfboðaliða, foreldra, dómara og fyrirtækja væri ekki hægt að halda þessi mót. Í gær komu tæplega 100 manns að mótinu á einn eða annan hátt og er því óhætt að segja að þessa 6 daga sem mótin stóðu yfir voru milli 500 og 600 hausar sem komu að þessu með okkur. �?ið sem voru í þessu með okkur takk kærlega fyrir hjálpina.
�?g segi það enn og aftur, án ykkar gæti ÍBV ekki staðið undir þessu frábæra starfi.
Einnig vil ég þakka styrktaraðilum mótanna kærlega fyrir gott samstarf.

Sighvatur Jónsson var með vélina á lofti og tók nokkru skemmtileg myndbönd um helgina sem hann gaf Eyjafréttum.is leyfi til að deila með lesendum sínum

Ásgeir Galdur Guðmundsson, fulltrúi ÍBV valinn í Orkumótsliðið 2015
ÍBV 1 og 2 á verðlaunaafhendingu Orkumótsins 2015
Ísak Huginn Héðinsson skorar í úrslitaleik Orkumótsins 2015
Elmar Elí Sighvatsson, fulltrúi ÍBV í pressuliði Orkumótsins 2015
Hér má sjá lista yfir verðlauna hafana.

Orkumótsbikarinn Breiðablik-1
Elliðaeyjarbikarinn Afturelding-1
Bjarnareyjarbikarinn Stjarnan-1
Heimaeyjarbikarinn KA-1
Helgafellsbikarinn Höttur-1
Stórhöfðabikarinn Víkingur-2
Suðureyjarbikarinn Breiðablik-4
Álseyjarbikarinn ÍBV-2
Surtseyjarbikarinn Stjarnan-4
Heimaklettsbikarinn FH-4
Yrstaklettsbikarinn Grindavík-2
Eldfellsbikarinn Grótta-3
Helliseyjarbikarinn Víkingur-3
Prúðustu liðin; Sindri/Neisti �?róttur Rvk
Háttvísi KSÍ; Grótta
Boðhlaup; Afturelding
Í Orkumótsliðið voru þeir valdir;
Ágúst Orri �?orsteinsson, Breiðablik
Amin Cosic, HK
Arnar Daði Jóhannsson, Afturelding
Arnar Smári Arnarson, Breiðablik
Árni Dagur Sveinsson, Fram
Ásgeir Galdur Guðmundsson, ÍBV
Benedikt Máni Guðmundsson, Stjarnan
Dagur �?li Grétarsson, FH
Daníel Breki, ÍA
Hlynur �?órhallsson, �?róttur R
Jóhannes Kristinn, KR
Viktor Ernir, Víkingur
Nánari umfjöllun um mótið verður í næsta tölublaði Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.