Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Úr leik ÍBV og Fram fyrr í vetur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta sigraði ÍR örugglega, 33-25, í næst síðustu umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í kvöld.

Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með og var staðan 5-4 Eyjakonum í hag, eftir tíu mínútur. Þegar stundarfjórðungur var liðinn byrjuðu Eyjakonur hægt og rólega að auka forskot sitt og náðu þriggja marka forystu, 8-5. ÍBV leiddi með fimm mörkum, 15-10, í hálfleik.

ÍBV byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og var sex marka munur á upphafs mínútunum. Þegar stundarfjórðungur var eftir var staðan 25-17. Eyjakonur unnu að lokum öruggan átta marka sigur. Lokatölur leiksins 33-25. 

ÍBV er öruggt í öðru sæti deildarinnar með 32 stig en Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitillinn í síðustu umferð. Þá geta Haukar, sem eru í 3. sætinu, ekki náð ÍBV að stigum. ÍR er í fjórða sæti með 22 stig. 

Birna Dís Sigurðardóttir, hornamaður ÍBV, var markahæst hjá Eyjakonum með átta mörk. Sara Dögg Hjaltadóttir, leikmaður ÍR, var markahæst í leiknum með 13 mörk. Amalia Frøland átti mjög góðan leik og varði 13 skot í marki ÍBV. Ólöf Maren Bjarnadóttir varði eitt skot.

Mörk ÍBV: Birna Dís Sigurðardóttir 8 mörk, Sandra Erlingsdóttir 6, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Birna Berg Haraldsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Klara Káradóttir 1, Lilja Kristín Svansdóttir 1, Birna Dögg Egilsdóttir 1.

Lokaumferð Olís deildar kvenna fer fram laugardaginn 21. mars. ÍBV sækir þá Val heim í N1 höllina kl 14:00.

Úrslit úr öllum leikjum kvöldsins í Olís deild kvenna:

KA/Þór 30 – 31 Valur

Selfoss 22- 30 Haukar

ÍBV 32 – 25 ÍR

Stjarnan 34 – 34 Fram

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.