Páskadagskrá Landakirkju
Landakirkja TMS 20200823 194229
Landakirkja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Páskadagskrá Landakirkju hefst í dag, skírdag. Hér að neðan má sjá dagskrá kirkjunnar yfir páskana.

Skírdagur: Guðsþjónustan á skírdagskvöld endar á svokallaðri Getsemane-stund þar sem altarið er afskrýtt sem táknræn niðurlæging Krists. Skírdagur er frekar tregablandinn í kirkjunni og því litast guðsþjónustan nokkuð af því.

Föstudagurinn langi: Nú í ár er lestur píslarsögunnar í höndum fermingarbarna og þeim sem náðu langt í upplestrarkeppninni.

Góðgerðarsipp: Lesa má meira um góðgerðarsipp sr. Viðars hér.

Páskadagur: Undanfarin ár hefur sr. Viðar lagt leið sína í Stórhöfða til að mæta sólarupprásinni sem markar jafnframt upphaf páska. Öllum er að sjálfsögðu velkomið að koma með. Í ár er sólris kl. 5:39 og því æskilegt að mæta örlítið fyrr til að mæta fyrstu geislum sólar. Við vonum að veður og skyggni verði gott.

Kl. 8 er síðan hátíðarguðsþjónusta í Landakirkju þar sem upprisu Krists er fagnað. Sr. Guðmundur Örn þjónar. Morgunverður er í boði sóknarnefndar í safnaðarheimilinu eftir messu. Kl. 10:30 er síðan hátíðarguðsþjónusta á Hraunbúðum þar sem sr. Viðar þjónar.

Í öllum guðsþjónustum syngur Kór Landakirkju og Kitty stjórnar. Sjáumst í kirkjunni okkar um páskanna. Gleðilega páska!

 

Af vef Landakirkju.

Nýjustu fréttir

Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.