Vetrarlokahóf ÍBV-íþróttafélags fór fram í gærkvöldi í Höllinni. Margt var um manninn en hápunktur kvöldsins var að sjálfsögðu verðlaunaafhendingar fyrir afrek vetrarins. Handboltalið ÍBV náðu frábærum árangri í vetur. Hæst bar auðvitað Íslandsmeistaratitill meistaraflokks karla. Auk þess komst meistaraflokkur kvenna í undanúrslit Íslandsmótsins og yngri flokkarnir unnu einnig Íslandsmeistarar- og bikartitla.
En þau Róbert Aron Hostert og Ester �?skarsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokkanna tveggja og eru bæði vel að því komin. Systkinin Sindri og Dröfn Haraldsbörn voru valin ÍBV-arar meistaraflokkanna en efnilegust voru þau Arna �?yrí �?lafsdóttir og Theodór Sigurbjörnsson.
Bestu leikmenn í elstu flokkum fengu svo Fréttabikarana en það voru þau Hallgrímur Júlíusson og Díana Dögg Magnúsdóttir.