�??Að vera með svona ósannindi og skæruhernað í fjölmiðlum er ekki til þess fallið að leysa þessa deilu. Að halda heilu samfélagi í gíslingu með svo óraunhæfum kröfum gengur ekki lengur,�?? segir �?lafur Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips í samtali við Mbl.is. �?ar svarar hann ummælum Jónasar Garðarssonar, framkvæmdastjóra Sjómannafélags Íslands á sama miðli. �??Við fórum yfir þetta lið fyrir lið og þeir eru ekki tilbúnir að koma til móts við okkur í einum einasta þeirra, þrátt fyrir að þeir séu búnir að borga öðrum starfsmönnum sínum sömu laun,�?? var haft eftir Jónasi sem bætti við: �??Okkur í samninganefndinni finnst sem viðmót Eimskips sé að það ætli ekki að semja við okkur.�??
�?lafur segir að fulltrúar SA í viðræðunum hafi lagt til ýmsa hluti í viðræðunum sem fulltrúar Sjómannafélagsins hafa ekki hlustað á �??og ekki fært sig tommu í átt að samningum,�?? segir �?lafur. Hann segir að lágmarkskrafa Sjómannafélagsins sé launahækkun upp á 43% og það hafi ekkert gefið eftir í þeim efnum.
�??Eimskip harmar það að svo mikil ósannindi séu sögð um jafn alvarlegt mál og samgöngur til Vestmannaeyja eru. Samfélagið í Vestmannaeyjum hefur þegar skaðast stórkostlega vegna verkfallsins óbilgjarna krafna Sjómannafélags Íslands,�?? segir �?lafur í samtali við mbl.is og bætti því við að Eimskip harmi það að enginn úr áhöfninni sitji í samninganefndinni.