Samdráttur í útflutningi á sjávarafurðum
3. júlí, 2020

Útflutningsverðmæti sjávarafurða var rúmir 23,7 milljarðar króna í maí, sem er í samræmi við bráðabirgðatölur Hagstofunnar sem greint var frá á Radarnum í byrjun júní. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi SFS. Þetta er tæplega 16% samdráttur í krónum talið miðað við útflutningsverðmæti sjávarafurða í maí í fyrra. Samdrátturinn er ívið meiri í erlendri mynt, eða rúm 25%, þar sem gengi krónunnar var um 12% veikara nú í maí en í sama mánuði í fyrra. Þetta má sjá í tölum Hagstofunnar sem birtar voru í vikunni.
Ágæti áskrifandi


Uppsjávarfiskur óvenju fyrirferðamikill í fyrra
Líkt og fram kom í fréttabréfi í júní, þá var óvenjumikill útflutningur á uppsjávarafurðum í maí í fyrra miðað við árstíma, eins og sjá má á myndinni hér á undan. Er hér aðallega um útflutning á makríl að ræða, en hann er að mestu veiddur síðla sumars og fram á haust og kann því að vera að töf hafi verið á afhendingu gagna og hann færður til bókar með útflutningi í maí. Eins var verðmæti loðnubirgða mun meira í maí í fyrra en í ár, sem aftur má eflaust skýra með töf á gögnum, enda hefur loðnubrestur verið tvö ár í röð. Sé útflutningsverðmæti uppsjávarafurða tekið út fyrir sviga, mælist samdrátturinn í útflutningsverðmæti sjávarafurða ívið minni á milli ára í maí, eða 4% í krónum talið en 15% í erlendri mynt.

Þessi framvinda sést einnig á myndinni hér fyrir neðan sem sýnir útflutningsverðmæti afurða eftir vinnslu. Þar má sjá að útflutningur á frystum afurðum var verulegur í maí í fyrra. Myndin virðist einnig benda til þess að nokkur aukning hafi verið í útflutningsverðmæti ferskra afurða á milli ára í maí, sem er vitaskuld rétt sé tekið mið af verðmætum þeirra í krónum talið. Á þann kvarða var tæplega 4% aukning, en sú aukning skrifast á gengi krónunnar enda var rúmlega 8% samdráttur sé tekið mið af útflutningsverðmætum í erlendri mynt.


Verulegur samdráttur í útfluttu magni
Sé tekið mið af fyrstu fimm fyrstu mánuðum ársins hefur útflutningsverðmæti sjávarafurða dregist saman um tæp 7% í krónum talið miðað við sama tímabil í fyrra. Þennan samdrátt má einkum rekja til tæplega 18% samdráttar í útfluttu magni. Það sem vegur upp á móti þessum mikla samdrætti í magni er hærra afurðaverð og 8% lækkun á gengi krónunnar, sem styður við afkomu greinarinnar í krónum talið.  Hvað afurðaverð varðar, þá fékkst að jafnaði tæplega 5% hærra verð fyrir útfluttar afurðir, mælt í erlendri mynt, á fyrstu fimm mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Þá hækkun má rekja til verðhækkana í upphafi árs, en viðsnúningur varð á afurðaverði í kjölfar COVID-19 með tilheyrandi lækkunum á mörkuðum, eins og áður hefur verið fjallað nokkuð um (sjá til dæmis hér).

Þetta rímar ágætlega við nýlegar spár, eins og Seðlabankans og Hagstofu Íslands, sem gera ráð fyrir verulegum samdrætti í ár og í raun þeim mesta sem orðið hefur í útflutningi á sjávarafurðum frá því snemma á níunda áratug síðustu aldar. Verður áhugavert að fylgjast með framvindu mála á næstu mánuðum og hvort að þær spár gangi eftir, en skjótt geta veður skipast í lofti. Næstu tölur um útflutning á sjávarafurðum eru væntanlegar á mánudaginn og eru það fyrstu tölur um gang mála í júní.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst