Samgöngur hafa ekki stoppað Miðflokkinn
Jón Þór Guðjónsson

Aðsend grein

Jón Þór Guðjónsson

Það er eðlilegt að spurt sé hvort samgöngur hafi áhrif á heimsóknir þingmanna til Vestmannaeyja í kjördæmaviku. Eyjafólk þekkir betur en flestir aðrir hvað það þýðir þegar siglt er til Þorlákshafnar og veðrið ræður för. En staðreyndir skipta máli í þessari umræðu.

Þingmaður Miðflokksins, Karl Gauti Hjaltason, hefur ekki látið samgöngur stöðva sig.

Í kjördæmavikunni í febrúar 2025 kom hann til Vestmannaeyja og átti m.a. fund með bæjarstjóra. Í lok september sama ár var hann aftur í kjördæmaviku í Eyjum. Þrátt fyrir að bæjarstjóri hafi þá verið fjarverandi átti hann fundi með öðrum bæjarfulltrúum. Í bæði skiptin greindu Eyjafréttir frá því að hann hefði verið eini þingmaðurinn sem heimsótti Vestmannaeyjar í viðkomandi kjördæmaviku.

Það er því einfaldlega rangt að halda því fram að samgöngur hafi stöðvað þingmann Miðflokksins. Þvert á móti hefur hann mætt þegar aðrir hafa ekki látið sjá sig.

Vestmannaeyingar eiga rétt á samtali við sína kjörnu fulltrúa. Það samtal á ekki að ráðast af því hvort siglt sé í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Aðstæður hér eru hluti af veruleika kjördæmisins og sá veruleiki á að endurspeglast í heimsóknum þingmanna.

Samgöngur hafa ekki stoppað Miðflokkinn og munu ekki gera það.

Heimildir:
https://eyjafrettir.is/kjordaemavikan-einn-thingmadur-maetti/
https://eyjafrettir.is/fjallid-taldi-ekki-eftir-ser-ad-leita-thingmenn-uppi/

 

Jón Þór Guðjónsson
Frambjóðandi á lista Miðflokksins í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Boranir hefjast í apríl
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.