Fjallið taldi ekki eftir sér að leita þingmenn uppi
Frá vinstri Njáll Ragnarsson, Gísli Stefánsson, Guðrún, Íris Róbertsdóttir, Ása Berglind, Eyþór Harðarson, Karl Gauti, Ásthildur Lóa og Víðir. Mynd af FB síðu Karls Gauta.

Ef Múhameð vill ekki fara til fjallsins verður fjallið að koma til Múhameðs er tilvitnun sem oft er gripið til og á við þingmenn Suðurkjördæmis og bæjarstjórn Vestmannaeyja.

Í nýliðinni kjördæmaviku á Alþingi var Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í kjördæminu sá eini sem sá sér fært að mæta til Eyja. Hefur verið öflugur talsmaður Vestmanneyinga á þingi og vill greinilega rækta sambandið.

„Það hafa verið annasamir dagar þessa vikuna. Hittum loks bæjarstjórnina í Eyjum í morgun, en þau komu til okkar að þessu sinni,“ segir Karl Gauti á Fésbókarsíðu sinni um fund fulltrúa í bæjarstjórn og nokkurra þingmanna kjördæmisins í gær. Í myndatexta segir;  Fundur með fulltrúum úr bæjarstjórn í Eyjum; Frá vinstri Njáll Ragnarsson, Gísli Stefánsson, Guðrún, Íris Róbertsdóttir, Ása Berglind, Eyþór Harðarson, undirritaður, Ásthildur Lóa og Víðir.

Í hvoru hlutverkinu bæjarstjórn er skal ósagt látið en stundum er sagt, sá vægir sem vitið hefur meira. Í þessu tilfelli var það  hún sem brá undir sig betri fótunum og sýndi með því að þau eru tilbúin að leggjast í ferðalög til að halda hagsmunum Vestmannaeyja á lofti.

Reynslan í kjördæmavikunni sýnir að ekki veitir af en gott er að vita af einum á þingi sem er til í að sinna okkur.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.