Samningur um Sóknaráætlun Suðurlands til ársins 2024
25. nóvember, 2019
Eva Harðardóttir formaður stjórnar SASS, Siguður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra við undirritun samningsins.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúar landshlutasamtakanna undirrituðu nýverið nýja sóknaráætlunarsamninga við hátíðlega athöfn í ráðherrabústaðnum. Eva Björk Harðardóttir formaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) undirritaði samninginn fyrir hönd samtakanna. Grunnframlag ríkisins til samninganna árið 2020 nemur 716 milljónum króna en með viðaukum og framlagi sveitarfélaga nema framlög alls 929 milljónum króna. Heildargrunnframlag ríkis og sveitarfélaga til Suðurlands árið 2020 verða rúmlega 118 mkr.

Samningarnir byggja á lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir og gilda til fimm ára, 2020-2024. Markmið laganna er að efla byggðaþróun og auka samráð milli ráðuneyta á sviði byggðamála, innan hvers landshluta og milli stjórnsýslustiga, jafnframt að færa til sveitarstjórna aukna ábyrgð á sviði byggða- og samfélagsþróunar. Forsögu sóknaráætlana má rekja til ársins 2011 þegar byrjað var að þróa hugmyndafræðina innan Stjórnarráðsins en fyrstu samningar um sóknaráætlanir landshluta voru gerðir árið 2013. Sóknaráætlanir landshluta eru þróunaráætlanir sem fela í sér stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Markmiðið er að ráðstöfun þeirra fjármuna sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði samfélags- og byggðamála byggi á áherslum heimamanna.
 

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga samþykkir Sóknaráætlun Suðurlands 2020 – 2024

Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024 tekur gildi um næstu áramót. Svæði Sóknaráætlunarinnar nær yfir sveitarfélagið Höfn í austri, að Hellisheiði í vestri og til Vestmannaeyja í suðri. Á svæðinu búa um 30 þúsund manns í 15 sveitarfélögum. Áætlunin var samþykkt á ársþingi SASS sem haldið var 24.-25. október s.l. Samtökin sjá um að framfylgja áætluninni með fyrrgreindu fjármagni frá mennta- og menningaráðuneytinu, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og sveitarfélögum á Suðurlandi. Nýja sóknaráætlunin tekur við af þeirri fyrstu sem gerð var fyrir landshlutann og var ákveðin frumraun og skilaði samtals 69 verkefnum á Suðurlandi. Í nýju áætluninni má sjá nýjar áherslur, þar má nefna umhverfi og samfélag en auk þeirra er áfram unnið með atvinnu- og nýsköpun. Áætlunin byggir m.a. á áherslum heimamanna sem fram komu á einum stórum samráðsvettvangi og íbúafundum sem haldnir voru um allt Suðurland s.l. vor.

 

Megináherslur nýrrar sóknaráætlunar Suðurlands 2020-2024

Ný Sóknaráætlun tengist markmiðum ríksstjórnarinnar og heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna. Áherslur og mælanleg markmið sóknaráætlunar Suðurlands verða innleidd í gegnum aðgerðir og verkefni Uppbyggingarsjóðs Suðurlands annars vegar og hins vegar í gegnum þau áhersluverkefni sem ráðist verður í árlega á Suðurlandi. Framundan er mikil vinna við að móta verkefni sem vinna skal á næstu árum. Á heimasíðu SASS er hægt að skoða betur nýja Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024, þar er einnig hægt að senda inn verkefnatillögu um áhersluverkefni sem tengist nýrri sóknaráætlun. Á heimasíðunni er líka hægt er að sjá áhersluverkefnin sem unnin hafa verið á Suðurlandi frá árinu 2015.

Guðlaug Ósk Svansdóttir
Verkefnastjóri

 

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst