Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta hefur valið 18 manna leikmannahóp sem tekur þátt í tveimur leikjum gegn Svartfjallalandi, í undankeppni Evrópumótsins sem fram síðar á þessu ári.
Eyjakonan og leikmaður ÍBV, Sandra Erlingsdóttir er í hópnum ásamt tveimur öðrum Eyjakonum, þeim Díönu Dögg Magnúsdóttur, sem leikur með Blomberg-Lippe og Elísu Elíasdóttur, sem leikur með Val.
Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum, miðvikudaginn 4. mars og síðan aftur ytra sunnudaginn 8. mars. Ísland er á botni riðilsins í undankeppni EM, án stiga, eftir tap gegn Færeyjum og Portúgal. Hópurinn kemur saman til æfinga 2. mars.
Hópinn í heild sinni má sjá hér að neðan:
Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Valur, (77/5).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (21/0).
Aðrir leikmenn:
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram (16/11).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (66/116).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (19/44).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (72/97).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (33/119).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (38/78).
Elísa Elíasdóttir, Valur (29/26).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (20/27).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (34/35).
Lovísa Thompson, Valur (37/70).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (7/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (10/6).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (45/185).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (3/12).
Thea Imani Sturludóttir, Valur (98/224).
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (54/88).
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.