ÍBV og Keflavík skildu jöfn á Hásteinsvelli í kvöld 1-1 í leik sem hefði í raun aldrei átt að fara fram. Aðstæður í Eyjum voru allar hinar verstu, hávaða rok, rigning og völlurinn mjög þungur og erfiður. Fyrir vikið var ekki margt sem gladdi augað hjá þeim 318 áhorfendum sem mættu á leikinn, ekki nema jöfnunarmark Jóns Ingasonar á 94. mínútu en Jón skoraði þar með sitt fyrsta mark fyrir ÍBV.