Á mánudaginn var fór fram söngkeppni Rauðagerðis í sal Barnaskólans. En í keppninni er valinn fulltrúi Rauðagerðis til þátttöku í söngkeppni Samsuð.
�?átttakendur voru fjórir talsins, hver öðrum betri. Sigur úr bítum bar þó Sara Renee Griffin sem söng lag Beyoncé – Pretty Hurts. Dagbjört Lena Sigurðardóttir lék undir á píanó.
Sara verður því fulltrúi Rauðagerðis á söngkeppni Samsuð sem er undankeppni félagsmiðstöðva á suðurlandi fyrir söngkeppni Samfés.
Hluta af flutningi Söru og Dagbjartar má sjá og heyra í spilararnum hér að ofan.