Hættum að fæða rotturnar

�?að er ekki víst að allir geri sér grein fyrir því að með því að láta matarafganga fara í holræsakerfið sé verið að fæða rotturnar sem þar dvelja, misjafnlega margar hverju sinni, fer eftir fæðuframboði og árangri í meindýraeyðingu. Spikfeitar rottur hafa á stundum litið dagsins ljós þegar þær hafa skriðið upp um opin niðurföll […]

Halldór Páll til liðs við ÍBV

Halldór Páll Geirsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við ÍBV. Halldór Páll er ungur og efnilegur markmaður, fæddur árið 1994. Hann spilaði upp alla yngri flokka ÍBV ásamt því að standa í marki KFS í nokkrum leikjum frá árinu 2011 en hann spilaði allt síðasta sumar með KFS og stóð sig virkilega vel. […]

Lagði skóna á hilluna eftir dvöl hjá ÍBV og er nú einkaþjálfari John Terry

Englendingurinn Bradley Simmonds er einn af fjölmörgum erlendum fótboltamönnum sem spilað hefur með ÍBV í Pepsi-deildinni á undanförnum árum. Simmonds, sem spilaði ellefu leiki og skoraði tvö mörk fyrir ÍBV í Pepsi-deildinni fyrir tveimur árum, þá aðeins 19 ára gamall, lagði skóna á hilluna eftir dvölina í Eyjum. Hann kom til ÍBV frá QPR í […]

Vantar ákvæði um hefndarklám

�?að er ekki knýjandi þörf á því að breyta lagaumhverfi í kynferðisbrotum en það þarf að bæta verklag og eyða fordómum þeirra sem koma að meðferð slíkra mála. �?etta kom meðal annars fram á málþingi laganema í dag um þessi mál. Mikil reiðialda gekk nýlega yfir samfélagið vegna þess að lögreglan fór ekki fram á […]

Sara Renee sigraði söngkeppni Rauðagerðis

Á mánudaginn var fór fram söngkeppni Rauðagerðis í sal Barnaskólans. En í keppninni er valinn fulltrúi Rauðagerðis til þátttöku í söngkeppni Samsuð. �?átttakendur voru fjórir talsins, hver öðrum betri. Sigur úr bítum bar þó Sara Renee Griffin sem söng lag Beyoncé – Pretty Hurts. Dagbjört Lena Sigurðardóttir lék undir á píanó. Sara verður því fulltrúi […]

Mikil þekking og reynsla til staðar og áhuginn mikill

Til stendur að hefja háskólanám í Vestmannaeyjum haustið 2016. Námið verður staðarnám í samstarfi Háskólans í Reykjavík við Háskólann á Akureyri. Námið er þrjár annir sem hægt er að taka á einu ári, haust, vor og sumar og gefur það 84 ECTS einingar. Takmarkið er að ná inn a.m.k. fimmtán nemum fyrsta árið og að […]

Sýning á verkum �?órðar Ben

Í dag, fimmtudag, kl. 17.00 verður opnuð sýning í Einarsstofu, Safnahúsi í tilefni af sjötugsafmæli listamannsins �?órðar Ben Sveinssonar. �?órður er ættaður úr Eyjum, fæddist í Nýjabæ 3. desember 1945 og ólst hér upp til sex ára aldurs en þá flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. Hann hélt sambandi við skyldfólk sitt í Vestmannaeyjum og vann á […]

Drífa valin í afrekshóp HSÍ

Vikuna 22.-29. nóvember æfir afrekshópur kvenna undir stjórn Hilmars Guðlaugssonar. �?essi hópur er hugsaður til að tengja betur saman Olísdeildina, yngri landslið og A landslið kvenna. �?arna fá fleiri leikmenn að kynnast því starfi sem er unnið í kringum landsliðin. Drífa �?orvaldsdóttir var valin frá ÍBV og er vel að valinu komin. Drífa hefur frá […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.