Lagði skóna á hilluna eftir dvöl hjá ÍBV og er nú einkaþjálfari John Terry
Englendingurinn Bradley Simmonds er einn af fjölmörgum erlendum fótboltamönnum sem spilað hefur með ÍBV í Pepsi-deildinni á undanförnum árum.
Simmonds, sem spilaði ellefu leiki og skoraði tvö mörk fyrir ÍBV í Pepsi-deildinni fyrir tveimur árum, þá aðeins 19 ára gamall, lagði skóna á hilluna eftir dvölina í Eyjum.
Hann kom til ÍBV frá QPR í Lundúnum þar sem hann er uppalinn, en hann hafði áður farið á láni til Staines og Woking í utandeildum enska boltans. Simmonds lagði skóna á hilluna eftir dvölina í Vestmannaeyjum og fór að einbeita sér að ástríðu sinni og framtíðaratvinnu.
Simmonds er í dag einkaþjálfari stjarnanna í Lundúnum og er meðal annars einkaþjálfari John Terry, fyrirliða Chelsea, en myndband af þeim félögunum að taka stutta æfingu má sjá hér að neðan. Simmonds lét Chelsea-manninn heldur betur taka á því á meðan flestir liðsfélagar hans voru í landsliðsverkefnum.
�?essi 21 árs gamli strákur er einnig einkaþjálfari Toni Terry, eiginkonu Johns, og Louise Redknapp, eiginkonu Jamie Redknapp, fyrrverandi landsliðsmanns Englands og núverandi sparkspekings á Sky Sports.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.