Setning �?jóðhátíðarinnar fór fram í sól og blíðu í dag. Veðrið hreinlega lék við Eyjamenn og gesti þeirra, þannig að fólk mætti léttklætt í Dalinn á setninguna og eftir hana voru borð dregin út úr hvítu tjöldunum þar sem því er komið við, og snætt utandyra. Martin Eyjólfsson, sendiherra og bjargvættur flutti hátíðarræðuna að þessu sinni en annars var setningin með hefðbundnu sniði. Henni lauk svo með bjargsigi ofan af Há.
Eins og áður sagði voru veðurguðirnir Eyjamönnum og gestum þeirra hliðhollir. �?ótt veðurspáin segi að veðrið verði ekki svona gott laugardag og sunnudag, þá verður það engu að síður ágætt, örlítil úrkoma á laugardagskvöld en annars lítil bleyta í kortunum. �?á hefur heldur dregið úr vindaspá sunnudagsins en nú er mesti vindur 15 metrar á sekúndu, miðað við spá
Yr.no.