ÍBV og FH mættust í kvöld í 20. umferð Olís deildar karla í handbolta þar sem ÍBV hafði betur, 20-19 eftir dramatískar lokamínútur þar sem að allt ætlaði um koll að keyra.
Í fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum en leikmenn ÍBV voru þó alltaf skrefinu á undan þrátt fyrir marga tapaða bolta, Stephen Nilsen fann sig vel í fyrri hálfleik og varði 14 skot. Mest náðu Eyjamenn þriggja marka forskoti en FH-ingar náðu jafn hraðan að jafna og var staðan jöfn í hálfleik, 9-9.
Lítið var skorað fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik, FH-ingar náðu svo fjögurra marka forskoti eftir um tíu mínútna leik en þá kom virkilega slæmur kafli hjá liðinu. Leikmenn ÍBV snéru leiknum sér í hag og skoruðu sex mörk gegn engu, Kolbeinn Aron Arnarsson hafði þá komið inn af bekknum og lokaði markinu en hann var með 63% markvörslu í kvöld. FH-ingar náðu að minnka muninn á nýjan leik og komast einu marki yfir þegar fimm mínútur voru eftir að leiknum og æsispennandi lokamínútur fram undan. �?að var svo Elliði Snær VIðarsson sem skoraði sigurmark ÍBV úr hraðaupphlaupi þegar tæp mínúta var eftir, lokatölur 20-19.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Andri Heimir Friðriksson 6, Kári Kristján Kristjánsson 5, Agnar Smári Jónsson 3, Nökkvi Dan Elliðason 2, Magnús Stefánsson 1, Elliði Snær Viðarsson 1, Theodór Sigurbjörnsson 1 og Grétar �?ór Eyþórsson 1.
Í markinu varði Stephen Nielsen 16 skot, þar af eitt víti og Kolbeinn Arnarsson 5 skot, þar af eitt víti.