Sigur í spennandi leik ::Myndir
ÍBV og FH mættust í kvöld í 20. um­ferð Olís deild­ar karla í hand­bolta þar sem ÍBV hafði betur, 20-19 eft­ir dramatískar lokamínútur þar sem að allt ætlaði um koll að keyra.
Í fyrri hálfleik var jafn­ræði með liðunum en leikmenn ÍBV voru þó alltaf skrefinu á undan þrátt fyrir marga tapaða bolta, Stephen Nilsen fann sig vel í fyrri hálfleik og varði 14 skot. Mest náðu Eyjamenn þriggja marka forskoti en FH-ingar náðu jafn hraðan að jafna og var staðan jöfn í hálfleik, 9-9.
Lítið var skorað fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik, FH-ingar náðu svo fjögurra marka forskoti eftir um tíu mínútna leik en þá kom virkilega slæmur kafli hjá liðinu. Leikmenn ÍBV snéru leiknum sér í hag og skoruðu sex mörk gegn engu, Kolbeinn Aron Arnarsson hafði þá komið inn af bekknum og lokaði markinu en hann var með 63% markvörslu í kvöld. FH-ingar náðu að minnka muninn á nýjan leik og komast einu marki yfir þegar fimm mínútur voru eftir að leiknum og æsispennandi lokamínútur fram undan. �?að var svo Elliði Snær VIðarsson sem skoraði sigurmark ÍBV úr hraðaupphlaupi þegar tæp mínúta var eftir, lokatölur 20-19.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Andri Heim­ir Friðriks­son 6, Kári Kristján Kristjánsson 5, Agnar Smári Jónsson 3, Nökkvi Dan Elliðason 2, Magnús Stefánsson 1, Elliði Snær Viðarsson 1, Theodór Sigurbjörnsson 1 og Grétar �?ór Eyþórsson 1.
Í markinu varði Stephen Nielsen 16 skot, þar af eitt víti og Kol­beinn Arn­ars­son 5 skot, þar af eitt víti.

Nýjustu fréttir

ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.