Sjómennskan í fjóra ættliði
28. maí, 2025
Hákon og Jón Atli virða fyrir sér bátakostinn á bryggjunni í fríinu. Ljósmynd/vsv.is

Á sunnudaginn verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur. Af því tilefni tökum við nú púlsinn á sjómannslífinu. Rætt er við þá feðga Jón Atla Gunnarsson, skipstjóra á Gullberginu og Hákon Jónsson, stýrimann á Drangavík á fréttasíðu Vinnslustöðvarinnar. Þar segir að stundum sé talað um að sjómennska sé fjölskylduarfur sem heldur áfram til næstu kynslóðar. Það á vissulega við í þessu tilviki.

Spannar tæpa öld á sjónum

Jón Atli rifjar upp fyrir blaðamanni að bæði pabbi hans sem og afi hafi verið sjómenn.

„Afi, Jón á Ver var sjómaður og einnig pabbi, Gunnar Jónsson,“ segir hann. En samkvæmt Heimaslóð hóf afi hans, Jón Guðmundsson frá Goðalandi sjómennsku tæplega 15 ára og var sjómaður í 43 ár, þar af skipstjóri í 30 ár. Hann byrjaði formennsku 1929, varð formaður á eigin bát, Ver VE 318 árið 1935. Hann varð aflakóngur 1946.

Pabbi Jóns Atla, var fæddur í Vestmannaeyjum 1940. Gunnar byrjaði til sjós 1958 með föður sínum á Ver og lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1961. Gunnar hóf formennsku á Ver á humarveiðum árið 1963. Á þessum árum var hann á haust-síldveiðum með Kristni Pálssyni á Berg. Hann var á gamla Berg þegar báturinn fórst út af Snæfellsnesi haustið 1962.

Gunnar var stýrimaður á nýjum Bergi 1963. Árið 1965 réðst hann á Ísleif IV með Guðmari Tómassyni og Gísla Jónassyni. Ísleifur IV var með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta það ár. Gunnar varð skipstjóri á Ísleifi IV 1966 og tók við Ísleifi VE 63 árið 1967. Árið 1975 keypti hann Ísleifsútgerðina ásamt fleirum og var skipstjóri á nýjum Ísleifi allt til ársins 2004 þegar þeir seldu Vinnslustöðinni reksturinn. Gunnar var aflakóngur Vestmannaeyja árin 1971 og 1973. Hann féll frá árið 2013.

Hvorugur stefndi á sjóinn

En aftur að deginum í dag. Sjómennskan hófst snemma hjá Jóni Atla. Hann rifjar upp að hann hafi fengið að fara með pabba sínum í siglingu í gosinu. Þá aðeins 5 ára gamall.

„Svo fékk ég að fara einn túr á sumar-loðnuvertíð. Ætli ég hafi ekki verið um 12 ára gamall þá. Svo fór ég einhverjum árum síðar í sumarafleysingu á Ísleifi, ætli það hafi ekki verið ’85 eða ’86 .“

Þegar þeir feðgar eru spurðir út í hvort að þeir hafi alltaf ætlað sér á sjóinn segja þeir báðir að hugur þeirra hafi alls ekki leitað á sjóinn. Pabbinn er fyrri til að svara.

„Ég ætlaði ekkert á sjóinn, ég fór í framhaldsskóla svo fór ég í Tækniskólann og var svona á leiðinni í sjávarútvegsfræðina en einhvern veginn tók ég vínkil-beygju þarna og fór í Stýrimannaskólann. Svo þegar ég er búinn með Stýrimannaskólann 1995 þá er ég farinn á sjóinn í afleysingum á hinum og þessum bátum,“ segir Jón Atli og bætir við að svo hafi hann farið á Ísleif VE. „Það var svo árið 2004 sem Ísleifur fer inn í Vinnslustöðina. Ég fer svo í fyrsta sinn sem skipstjóri árið 2009, þá á gulldepluveiðar. Ég bauð mig fram í það þar sem það var lítil eftirspurn hjá þáverandi skipstjórum að fara á gulldepluveiðar.“

Jón Atli rifjar svo upp að Hákon hafi komið með honum í fyrsta skipti á sjóinn þegar hann var 11 ára.  Er Hákon er spurður út í fyrstu sjóferðirnar sínar rekur hann minni til að hann hafi farið sem háseti fyrst um 17-18 ára aldurinn.

Spurður hvort faðir hans hafi haft áhrif á ákvörðunina um að fara í sjómennsku svarar Hákon: „Það var eiginlega hann sem dró mig í fyrsta túrinn þegar að það vantaði mann. Ég var ekkert á leiðinni á sjóinn fyrir það, en er svo búinn að vera á sjónum meira og minna síðan.“

Getur ekki ímyndað sér að hann eigi eftir að vinna við nokkuð annað

Hákon fór sl. haust sinn fyrsta skipstjóratúr með Drangavík og gekk sú veiðiferð vel hjá þeim. Aðspurður um hvernig hann sjái framtíðina fyrir sér og hvort hann eigi von á að vera á sjónum áfram, svarar Hákon að hann geti ekki ímyndað sér að hann eigi eftir að vinna við nokkuð annað.

En hvað heillar Hákon mest á sjónum. Hvað er skemmtilegast við það? „Að fiska sem mest. Að vera í mokveiði er það langskemmtilegast.” Pabbi hans bætir við að Hákon hafi frekar kosið að vera á botnfiskveiðum því þar sé meiri keyrsla. „Það á betur við hann að vera í meiri keyrslu,” segir hann. Þá liggur beinast við að spyrja Hákon hvað sé erfiðast við sjómennskuna. „Það er að vera í engri veiði og í skítabrælu.“

Slysavarnaskóli sjómanna kom sterkur inn

Jón Atli segir aðspurður um hvernig sjómennskan hefur breyst á milli ykkar kynslóða að það séu klárlega öryggismálin. „Þau eru komin á allt annan og betri stað. Þar kom Slysavarnaskóli sjómanna sterkur inn. Við viljum hafa þessi mál í lagi. Það er mjög mikilvægt.“ Einnig nefnir Jón Atli tölvubyltinguna, samskiptin og í raun sé endalaus þróun í öllum hlutum um borð.

Hvaða ráð mynduð þið gefa þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í sjómennsku?

Hákon segir að það sé að bíta á jaxlinn og komast í gegnum fyrstu túrana. „Þeir eru erfiðastir.“ Jón Atli bætir við að hann leggi alltaf áherslu á við alla að fólk mennti sig. „Þetta er orðið svo flott í dag þetta fjarnám. Fólk getur verið í námi þó að það stundi sjóinn. Það getur alveg komið upp að fólk geti ekki stundað sjóinn og því er gott að hafa einhverja menntun til að grípa í. Svo þurfum við að lyfta grettistaki og fá aftur Stýrimannaskólann hingað til Eyja,“ segir Jón Atli að endingu.

Fleiri myndir má sjá hér.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
7. nóvember 2025
20:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
ludra
8. nóvember 2025
16:00
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Hvítasunnukirkjunni
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.