Skipstjóri á Herjólfi segist hafa fellt niður ferðir skipsins í morgun eftir að það tók niðri í Landeyjahöfn tvívegis í gær. Starfsmaður Siglingastofnunar hefur kannað aðstæður í nýju höfninni í morgun en óvíst er með framhald siglinga þangað. Siglingastofnun, Vegagerðin og Eimskip ræða nú framhald mála og dýpkunarskipið Perlan bíður þess í Reykjavík að veður skáni, svo hægt verði að hefjast handa við að dýpka höfnina.