Slippurinn vinsælasti veitingastaðurinn á Suðurlandi
3. september, 2013
Veitingastaðurinn Slippurinn, sem er staðsettur í Magnahúsinu við Strandveg, er vinsælasti veitingastaður Suðurlands, samkvæmt vefsíðunni Tripadvisor.com. Síðan virkar þannig að ferðamenn gefa veitingahúsum, gistiheimilum og fleira einkunn en 27 ferðamenn hafa gefið Slippnum einkunn og fær veitingastaðurinn fullt hús stiga.