Slúðurteiti hjá Gróu gömlu á Leiti
“Árið er 2015, Ísland er í verðlaunasæti fyrir velgengni sína í jafnréttismálum í öllum heiminum og fögnum við því. �?að er þó langt í land með það að ná fram fullu jafnrétti á milli kynjanna en við erum á góðri siglingu. Aumingja Gróu á Leiti er bendlað við allt umtal og umræður sem spretta upp, umræður sem eiga fyllilega rétt á sér miðað við tíðarandann. Gróa á Leiti dúkkar upp í Vestmannaeyjum líkt og annarsstaðar á landinu og í heiminum öllum.
Hvað hún Gróa sé nú kölluð úti í heimi veit ég ekki alveg en mér dettur í hug enska orðið “gossip”. �?að að líkja slúðri saman við raunverulegrar myndbirtingar aldraðs manns á rassamyndum af unglingsstúlkum undir lögaldri á samfélagsmiðli og segja það list er ofar mínum skilningi. �?g hef ekki mikið vit á list sem slíkri, þó svo að ég sé áhugamaður um góða tónlist, falleg málverk, leikrit og annað þá skil ég ekki hvað þessar myndbirtingar og list eiga sameiginlegt.
En maður getur auðvitað ekki skilið allt. Skilgreiningar mínar á ljósmyndara og myndlistarmanni eru heldur ekki þær sömu en kannski finnst öðrum þetta tvennt haldast í hendur. Með þessu er ég beint, já eða óbeint að svara skrifum Bjarna �?lafssonar sem hann sendi til Eyjafrétta fyrir viku síðan.
�?g sá grein hans í fyrradag og varð satt best að segja að fá að hugsa aðeins um hvað ég var að lesa. �?að er vissulega rétt það sem hann segir að verið sé að mynda mann og annan upp á hvern einasta dag í hversdagslegum athöfnum, það er breytt birtingarmynd tækninnar með snjallsímum en þegar þessar tilteknu myndir eru teknar var öldin önnur.
�?á voru ekki komnir snjallsímar með megapixla myndavélum á markað, þá var ekki til Facebook og þá voru netheimarnir ekki jafn öflugir. Til að mynda var á tali í heimasímanum þínum á meðan þú tengdist internetinu, ef þú varst á annað borð bara með internet yfir höfuð – sælla minninga. �?g er alveg viss um það að ef að Facebook hefði verið til þegar ég var 14-15 ára og þessi umræddi maður birt þessar myndir á sínum prófíl að þá hefðu foreldrar mínir gert við það alvarlegar athugasemdir. Hvort sem það var þá eða nú að þá held ég að flest allir geti sett spurningarmerki við slíkar myndbirtingar. �?háð þeirri tækniöld sem við lifum á.
Mér finnst Bjarni líka svolítið vera reyna benda lesendum Eyjafrétta á það um hvern ræðir þar sem hann spyr hvort að allir í Eyjum þekki hann ekki sem myndlistarmann og hvetur svo bæjarbúa til þess að senda manninum blóm. �?að hefur hvergi komið fram hver umræddur maður sé eða neitt persónulegt um hann en nú eru lesendur kannski ögn nær, þökk sé Bjarna, þeim annars ágæta manni og jafnframt fjölskyldumeðlim umrædds manns.
�?að að þetta umtal hafi allt birst í einhverju slúðurteiti hjá Gróu gömlu á Leiti er léleg afsökun til þess að skýla sig á bakvið. Mig langar til þess að benda á að enginn hefur kært manninn, allavega ekki enþá, að mér vitandi. �?að að tilkynna eða benda á eitthvað grunsamlegt er ekki það sama og að kæra, bara svo að staðreyndirnar séu á hreinu. Engin nöfn voru heldur birt undir myndunum á Facebook síðu mannsins þó svo að blaðamaður DV hafi haldið því fram og Bjarni telji þess vegna að feluleikur mannsins hafi verið enginn.
Eftir að ég sjálf vakti athygli á þessum myndbirtingun fékk ég fjöldann allan af einkaskilaboðum frá stelpum/konum sem höfðu frá skondnum sögum að segja varðandi þennan mann. Sumar segjast muna eftir honum frá barnsaldri þegar hann sat og laumupúkaðist með myndavélina þegar þær voru að sulla og vaða á Skansinum, sundfötum einum klæða. Sumar segjast muna eftir honum mynda sig að leik úti í garði, fáklæddar á sumardögum. Sumum þeirra bauð hann meira að segja heim til sín og hafa þær allar sömu sögu að segja um útlit heimilis hans eða; myndir af konum upp um alla veggi, kvenmanns nærbuxur í skál og reykjamökkur mikill.
Ein lýsir því þegar hún var mikið hjá ömmu sinni sem bjó rétt hjá umræddum manni, að hann hafi eitt sinn boðið henni inn og þar hafi verið fjöldinn allur af myndum af henni, þó aðallega rassamyndir af henni að hlaupa upp tröppurnar að húsi ömmu sinnar. Ein lýsir því þegar hún fékk inn um bréfalúguna, mynd frá honum af sér og systur sinni, báðar undir lögaldri, á leiðinni úr kistulagninu afa síns, grátbólgnar.
Enn önnur lýsir því þegar hún stundaði ljósabekki á vinnustað mannsins síns, henni leið alltaf eins og einhver væri að horfa á sig og fékk svo staðfestingu á því þegar umræddur maður gefur manni konunnar mynd af henni nakinni í afmælisgjöf. Er þetta bara list?
�?g velti fyrir mér list eða bara siðleysi. �?að segir mér mikið um samvisku mannsins að hafa eytt út öllu af Facebook síðu sinni í miku flýti og hefur hann sennilega gert góða jólahreingerningu á heimili sínu líka, án þess að ég hafi nokkrar heimildir fyrir því samt. Kannski er ég bara svona mikil þurrkunta og geri of mikið úr hlutunum en mér finnst þetta sjúkt. �?að væri flott ef við öll gætum bara falið okkur á bakvið listina þegar við værum komin í smá vandræði – það væri auðvelt. �?etta er bara listinni og snjallsímanum mínum að kenna! Nei, við nefninlega vitum flest betur ef við nennum að hugsa aðeins lengra. �?g get þó allavega glaðst yfir því að hafa fengið flest “like” á myndina af mér þetta ár sem hún fékk að hanga þarna inni en “like-in” komu úr öllum áttum, til dæmis frá brottfluttum Vestmannaeyingi sem er dæmdur níðingur, öðrum brottfluttum Vestmannaeyingi sem er eldri en afi minn og nokkrum erlendum karlmanns vinum umrædds manns. �?að sem er hinsvegar virðingarvert og stundum getur gefið fyrirgefningu er þegar sjúkt fólk áttar sig og leitar sér hjálpar við djöflum sínum og ég vona heitt og innilega að umræddur maður kannski bara geri það. Að lokum langar mig til þess að hvetja alla þá sem eiga iittala blómavasa að fara út í blómabúð og kaupa sér sína eigin túlípana og eiga góða helgi.”
Ásthildur Hannesdóttir.

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.