Slysið rakið til búnaðar
Rann­sókn­ar­nefnd sjó­slysa tel­ur að or­sök slyss sem varð um borð í sand­dælu­skip­inu Perlu í Land­eyja­höfn í apríl megi rekja til þess hversu illa hannaður búnaður var um borð og starfs­um­hverfið óör­uggt. Skip­verji slasaðist mikið í slys­inu.
�?ann 17. apríl 2015 var sand­dælu­skipið Perla við störf við Land­eyja­höfn. Veður: VSV 4-6 m/�??s (Land­eyja­höfn) Skip­verji var einn að vinna við að spúla lest­ina og hélt í hand­fang, fast við hosu, sem losnaði af með þeim af­leiðing­um að hann kastaðist með henni ofan í lest­ina. Skip­verj­inn lenti m.a. á járn­bita og slasaðist mikið.
Fram kem­ur í skýrslu sjó­slysa­nefnd­ar að slasaði var að stýra skol­stút með tveggja metra hand­fangi sem soðið var fast á stút­end­ann og stóð hann á palli milli lest­anna við það). Stút­ur­inn, sem losnaði, var á gúmmí­barka sem fest­ur var við sjó­lögn­ina og hand­fangið var fest í enda hans. Ekki er vitað af hverju stút­ur­inn losnaði en skip­verj­inn náði ekki að sleppa hand­fang­inu í tíma.
Nefnd­in tel­ur að þrátt fyr­ir end­ur­bæt­ur og breytt verklag sé frá­gang­ur á stútn­um viðsjár­verður með til­liti til ör­ygg­is. Nefnd­in tel­ur að með til­liti til búnaðar og verk­efn­is skips­ins hafi mönn­un þess verið ábóta­vant. Nefnd­in tel­ur brýnt að Sam­göngu­stofa end­ur­bæti lög­skrán­inga­kerfi sjó­manna sem fyrst þannig að unnt sé að skrá raun­veru­lega mönn­un skipa, seg­ir í nefndaráliti en Perla sökk í Reykja­vík­ur­höfn í byrj­un nóv­em­ber.
Stjórn­end­ur Björg­un­ar hafa lýst yfir altjóni vegna dælu­skips­ins Perlu sem sökk í Gömlu höfn­inni í Reykja­vík. Ráðstöf­un flaks­ins er á hendi trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvár.
mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.