Smyrill gæddi sér á smáfugli - myndir
Smyrill IMG 7867
Smyrillinn með bráð sína á kletti í bakgarði ritstjóra Eyjafrétta. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í gærmorgun vakti fugl athygli í bakgarði ritstjóra Eyjafrétta. Þegar betur var að gáð var um að ræða smyril. Ránfuglinn hafði náð að klófesta smáfugl og var að gæða sér á honum þegar þessar myndir eru teknar.

Smyrillinn er algengasti íslenski ránfuglinn, líkur fálka en mun minni að því er segir á Fuglavefnum. Þar segir enn fremur að karlfuglinn sé blágrár að ofan, með dekkri vængbrodda og dökkan stélsenda, ryðrauður að neðan og á hnakka, svartrákóttur á bringu og kviði, með ljósbrúna kverk og skálmar. Hann er minni en kvenfugl. Kvenfugl og ungfugl á fyrsta vetri eru dökkbrún að ofan, sterkrákótt að neðan en grunnliturinn er hvítur eða mógulur. Stélið er dökkbrúnt með mógulum rákum. Bæði kyn eru með óljósa skeggrák.

Smyrillinn er lipur og harðfylginn veiðifugl sem flýgur hratt yfir móa og grundir og þreytir oft bráð sína með því að elta hana. Vængjatökin eru hröð og flugið létt, hann svífur sjaldan og hnitar lítið. Ýmist sjást fuglarnir stakir eða í pörum.

Þegar smyrillinn hafði verið dágóða stund að gæða sér á fuglinum flaug hann á brott með hræið með sér.

20250820 090731

Nýjustu fréttir

5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.