Í gær kyngdi niður snjó í Vestmannaeyjum og hafa flest tæki bæjarins unnið að snjómokstri. Í tilkynningu á vef bæjaryfirvalda segir að vegna mikils snjóþunga í Vestmannaeyjum á gangstígum og gangstéttum muni taka lengri tíma en venjulega að ryðja þá og gera greiðfært fyrir gangandi vegfarendur. Á meðan á þessum aðstæðum stendur eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát og tillitssemi í umferðinni.
Halldór B. Halldórsson fór um bæinn í morgun og má sjá myndband hans hér að neðan.