Í gær varð rafmagnslaust í á aðra klukkustund í Vestmannaeyjum, í Vík og í Landeyjum. Það sem einnig datt út í rafmagnsleysinu voru FM-útsendingar RÚV. Hvorki náðist Rás 1 né Rás 2. Hins vegar voru hljóðvarpsstöðvar Sýnar í lagi á meðan rafmagnslaust var. Bæði Bylgjan og FM voru í loftinu sem og útvarpsstöðin Lindin.
Atvikið vekur spurningar um skyldur Ríkisútvarpsins samkvæmt almannavarnaáætlun landsins.
Í lögum um Ríkisútvarpið segir að það skuli, í samvinnu við stjórnvöld, tryggja nauðsynlega öryggisþjónustu með upplýsingamiðlun um útvarp og, þegar við á, eftir öðrum boðleiðum. Í því skyni skal Ríkisútvarpið hafa öryggisstefnu sem tryggi órofinn rekstur hljóðvarpsþjónustu um land allt og á næstu miðum.
Ríkisútvarpið er mikilvægur hlekkur í öryggiskerfi landsins og á að tryggja landsmönnum áreiðanlegar upplýsingar þegar alvarlegir atburðir eða hamfarir verða. Öryggisstefna RÚV skiptist í tvö meginatriði: ytra öryggi og innra öryggi.
Ytra öryggi felur í sér að RÚV viðheldur eigin dreifikerfum, þar á meðal langbylgjusendum sem ná til alls landsins, og prófar reglulega virkni búnaðar til að tryggja órofnar útsendingar. Fréttastofan hefur áætlanir um viðbrögð við vá og starfar í samráði við Almannavarnir.
Innra öryggi snýr að varaafli, neyðarbúnaði og öruggri hönnun kerfa í höfuðstöðvum RÚV við Efstaleiti. Öryggisnefnd Ríkisútvarpsins ber ábyrgð á því að stefnunni sé fylgt, segir m.a. í stefnunni.
Hægt er að þakka fyrir að þessu sinni að hvorki varð net eða símasambandslaust. En komi það upp er aldrei mikilvægara að hafa útvarpsútsendingar í lagi, svo koma megi upplýsingum til íbúa á þeim stöðum sem verða fyrir því að missa samband.
Það er mikilvægt að landsmenn geti treyst því að Ríkisútvarpið sinni öryggishlutverki sínu um land allt og á næstu miðum – eins og segir í lögunum – alltaf.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst