Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.

Nafn: Ármann Halldór Jensson 

Aldur: 33 ára 

Fjölskylda: Giftur Þórunni Ingólfsdóttur og saman eigum við hana Móeiði Únu sem er 3 ára gömul. 

Fyrri afskipti af stjórnmálum? 

Ég hef ekki áður tekið virkan þátt í stjórnmálum og hef sjaldan verið með mjög fastar skoðanir á þeim vettvangi. Eftir töluverða hvatningu til að taka þátt í prófkjöri fór ég þó að velta því fyrir mér hvort ég gæti lagt eitthvað af mörkum. Mér þykir vænt um eyjuna mína og fólkið sem hér býr, og einhvers staðar þarf að byrja. Af hverju ekki núna?  

Af hverju sjálfstæðisflokkurinn? 

Mér þykja þau gildi sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir endurspegla það sem ég trúi á og vil vinna með sem eru ábyrgð, dugnaður og trú á einstaklinginn. 

Brýnustu verkefni? Brýnustu verkefnin eru að takast á við þau hagsmunamál sem skipta samfélagið okkar mestu máli. Þar ber fyrst að nefna samgöngur, málefni fatlaðra og aldraðra, sem og að skapa góð búsetuskilyrði fyrir fjölskyldufólk 

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á? 

Ég mun leggjast á sveif með öllum málum góðum málum sem koma íbúum í Eyjum til góða og bæta hér lífsskilyrði. Þar eru auðvitað efst á baugi þá mál sem ég nefndi hér áður sem brýnustu verkefnin. Þeim málefnum, sem og mörgum öðrum, þarf að vinna að af festu og ábyrgð og tryggja að úrlausnir þeirra þjóni íbúum í Eyjum til bæði skemmri og lengri tíma. 

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja?  

Ég sé framtíð Vestmannaeyja sem bjarta og efnilega. Hér býr öflugt og samhent fólk sem vill leggja sitt af mörkum og vinna saman að því að gera samfélagið enn betra. Með samstöðu, jákvæðni og sameiginlegri ábyrgð getum við byggt upp sterkt og blómlegt bæjarfélag til framtíðar. 

Hvað hefur þú fram á að færa sem fulltrúi sjálfstæðisflokksins?

Ég tel mig færa flokknum ferska sýn og jákvæða nálgun. Mér finnst mikilvægt að vinna saman í góðu andrúmslofti, þar sem gleði og samheldni einkenna samstarfið. Ég trúi því að þannig náist betri árangur og sterkari liðsheild. 

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar?

Það sem skiptir mig mestu máli er að við stöndum öll saman sem ein heild og vinnum að sameiginlegum markmiðum af heilindum. Með góðri samvinnu og samheldni getum við tryggt að vinnan okkar skili sér til bæjarbúa, þannig að allir geti verið stoltir af því sem gert er og ánægðir með árangurinn. 

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.