Staða og viðbrögð vegna útbreiðslu Covid-19
DSC 5950
Áfram fjölgar íbúum í Eyjum.

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyjabæjar fundaði í gær til umræðu voru viðbrögð vegna COVID-19 faraldursins. Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs og deildarstjóri öldrunarþjónustu fóru yfir stöðu og viðbrögð vegna útbreiðslu Covid-19 í sveitarfélaginu. Áherslan í upphafi var að verja viðkvæma hópa eins og á Hraunbúðum, fatlað fólk og viðkvæma hópa félagsþjónustunnar.

Á Hraunbúðum var hjúkrunarheimilinu lokað 8. mars sl. nema í sérstökum undantekingartilfellum. Viðbragðsáætlun og sýkingavarnaráætlun var virkjuð. Húsinu, starfshópum og heimilisfólki var skipt upp í einingar til að vernda hópa við smiti. Unnið hefur verið eftir leiðbeiningum frá sóttvarnarlækni varðandi viðbrögð við Covid-19.

Stjórnendur Hraunbúða sitja reglulega fundi með starfshópi Almannavarna á sviði hjúkrunarheimila. Þjónusta dagdvalar á Hraunbúðum er bæði skert og breytt en henni er ekki lokað. Haft hefur verið samband við alla gesti og fundinn flötur á breyttri þjónustu. Í sumum tilfellum fer þjónustan fram á heimili viðkomandi eða með öðrum hætti s.s. með ökuferðum.

Öllum eldri borgurum sem komið hafa í hádegismat á Hraunbúðum hefur verið boðinn heimsendur matur. Þjónustan í þjónustuíbúðum í Eyjahrauni er með breyttu sniði. Starfsmaður sinnir áfram sömu þjónustu og verið hefur á morgnana, virka daga ásamt innliti kvölds og morgna. Starfsmaður í dagdvöl fer í reglulegar vitjanir og símavitjanir á staðinn. Stuðningsþjónustan/heimaþjónustan er að mestu óbreytt við einstaklinga í heimahúsi. Starfsmenn sýna sérstaka aðgát hvað varðar sóttvarnir og sömu kröfur eru gerðar til þjónustuþega.

Nokkuð hefur borið á afbókunum á þjónustunni en reynt er að tryggja að halda sambandi við viðkomandi í gegnum síma. Janusarverkefnið er með mjög breyttu sniði en þátttakendur eru engu síður hvattir til að hreyfa sig utandyra og fara í daglegar göngur og hafa fengið reglulega pistla og æfingar í gegnum netið. Öll starfsemi félags eldri borgara og Vestmannaeyjabæjar í Kviku og öðrum starfstöðvum liggur niðri. Settar voru sóttvarnarleiðbeiningar í andyri leiguíbúðakjarna fyrir eldri borgara og gátlisti fyrir gesti til að meta hvort þeir ættu að hverfa frá heimsókn ef ákveðin einkenni eru til staðar. Sótthreinsir er við anddyri íbúðanna og allir hvattir til að spritta sig vel. Varðandi annan stuðning við eldri borgara þá hefur bærinn verið í samstarfi við RKÍ sem bjóða upp á aðstoð við útréttingar fyrir þá sem ekki hafa aðra til að hjápa sér. Einnig hefur verið bent á símanúmer sem hringja má í ef fólk fer að einangrast eða vantar stuðning.

Í sambýlinu við Vestmannabraut hefur viðbragðsáætlun verið virkjuð sem og sýkingarvarnaráætlun. Sett hefur verið upp heimsóknarbann nema með sérstökum undantekningum. Reynt er að halda uppi virkni heimilismanna og farið reglulega í bæjarferðir en gætt vel að öllum sóttvörnum.

Í Heimaey var viðbragðsáætlun og sýkingarvarnaráætlun virkuð. Endurvinnslunni var lokað og starfseminni skipt upp til að tryggja sóttvarnir og draga úr smitleiðum. Á Hraunbúðum og sambýlinu var tryggð bakvarðarsveit sem er til taks ef þörf er á. Á skrifstofu félagsþjónustu var starfsmannahópnum skipt upp til að tryggja þjónustuna. Gætt er sérstaklega að viðkvæmum hópum sem og barnavernd. Í dag eru starfsmenn í öldrunarþjónustu og félagsþjónustu að hringja út til fólks og kanna stöðuna hjá því.

Fundarbann er nema í gegnum fjarfundabúnað. Öll samskipti við þjónustuþega fara fram í gegnum síma eða netpóst nema brýn nauðsyn er að hitta einstaklinga. Íþróttamiðstöðin og félagsmiðstöð barna er lokuð vegna samgöngubanns Almannavarna en starfsmenn eru í vinnu við ýmis störf og sumir hverjir í bakvarðarsveit ef með þarf. Framkvæmdastjóri sviðs er í viðbragðshópi bæjarins sem fundar nánast alla daga vikunnar. Hann er einnig í nærri daglegum samskiptum við forstöðumenn stofnana.

Áhersla er á að forstöðumenn séu í góðu sambandi við starfsmenn sem þurfa að fara í sóttkví eða einangrun sem og við aðra starfsmenn sem sinna daglegri þjónustu. Framkvæmdastjóri vill koma því á framfæri að hann er afar stoltur af starfsmönnum sviðsins og framlagi þeirra. Forstöðumenn sem og aðrir starfsmenn leggja sig fram af alúð og umhyggju við að sinna þjónustuþegum sem best á þessum erfiðu tímum.

Ráðið þakkaði upplýsingarnar og einnig öllum starfsmönnum sviðsins og Vestmannaeyjabæjar fyrir þeirra framlag. Það er ánægjulegt að sjá hvernig starfsfólk sem er í framlínustörfum, þjónustuþegar og allir íbúar mæta erfiðum aðstæðum með velvilja, skilningi, jákvæðni og góðu samstarfi. Ráðið leggur áherslu á að bæjarbúar standi saman og leggi sig fram að halda áfram uppi jákvæðni og bjartsýni á erfiðum tímum. Einnig leggur ráðið áherslu á og hvetur fólk til að halda uppi virkri heilsueflingu m.a með því að stunda gönguferðir og nýta sér þær fjölmörgu leiðbeiningar um líkamsrækt sem til er á netinu t.d. inn á facebooksíðu Hressó líkamsrækt og fleiri aðilum. Einnig vill ráðið benda á nýja síðu á Facebook sem heitir Afþreying á Heimaey fyrir alla fjölskylduna. Að endingu eru bæjarbúar hvattir til að nýta sér fjarskipti í gegnum síma og netspjall til að halda tengslum við vini og sína nánustu. Höfum í huga að við erum öll almannavarnir og hlýðum Víði.

Nýjustu fréttir

Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.