
Opinn kynningarfundur með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins var klukkan 11.00 í morgun í Ásgarði. Þar gafst 14 frambjóðendum, sjö körlum og sjö konum tækifæri á að kynna sig og þau mál sem þau leggja áherslu á.
Aðsókn var góð, liðlega 100 manns sem er meiri fjöldi en sést hefur í Ásgarði, húsi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í einhver ár. Eftir klofninginn í kjölfar bæjarstjórnarkosninganna 2018 er ekki annað að sjá en að nú ætli sjálfstæðismenn að standa saman í þeirri von að ná meirihluta í bæjarstjórn í kosningunum í vor.
Spurt var á fundinum hvort flokkurinn ætlaði að tefla fram bæjarstjóraefni. Skýrt kom fram að það verði ákvörðun framboðslistans að ákveða það.
Trausti Hjaltason, sem býður sig fram í fyrsta sæti listans ásamt Eyþóri Harðarsyni núverandi oddvita flokksins sagðist tilbúinn að setjast í stól bæjarstjóra næði hann góðri kosningu í fyrsta sætið.
Öll komu þau vel fyrir og ljóst að spennandi prófkjör er fram undan þann 13. mars nk. Ættu úrslit að liggja fyrir um miðnætti á föstudagskvöldið.
Þau gefa kost á sér í prófkjörinu.
| Aníta Jóhannsdóttir |
| Ármann Halldór Jensson |
| Eyþór Harðarson |
| Guðbjörg Sól Sindradóttir |
| Hannes Kristinn Sigurðsson |
| Hildur Sólveig Sigurðardóttir |
| Jarl Sigurgeirsson |
| Kjartan Vídó Ólafsson |
| Margrét Rós Ingólfsdóttir |
| Óskar Jósúason |
| Ragnheiður Lind Geirsdóttir |
| Rannveig Ísfjörð |
| Trausti Hjaltason |
| Þóra Guðný Arnarsdóttir |