Stórsigur á Stjörnunni
28. maí, 2019

ÍBV tók á móti Stjörnunni úr Garðabæ í leik í Pepsi Max-deild kvenna í gærkvöldi.

Það tók ÍBV aðeins níu mínútur að setja fyrsta markið. Cloé Lacasse opnaði þá markareikning kvöldsins er hún skoraði eftir sendingu frá Sesselju Líf Valgeirsdóttur. Á 27. mínútu fékk ÍBV svo víti en Birta Guðlaugsdóttir, markverður Stjörnunnar gerði sér lítið fyrir og varði frá Sigríði Láru Garðarsdóttur.

Tveimur mínútum síðar skoruðu Stjörnustúlkur svo sjálfsmark eftir skot frá Emmu Rose. Þannig stóð í hálfleik, 2-0 Eyjastúlkum í vil.

Svo virðist sem níunda mínútan sé í uppáhaldi hjá Cloé Lacasse því líkt og í fyrri hálfleik skoraði Cloé einnig eftir níu mínútna leik í síðari hálfleik, 3-0. Tæpum stundarfjórðungi síðar bætti Clara Sigurðardóttir við fjórða marki ÍBV, 4-0.

Cloé var hins vegar ekki hætt því á 69. mínútu fullkomnaði hún þrennuna og kom Eyjastúlkum í 5-0. Þetta urðu lokatölurnar og stórsigur ÍBV því staðreynd.

Eftir fimm umferðir situr ÍBV í fimmta sæti deildarinnar með sex stig. Næsti leikur hjá stelpunum er gegn HK/Víkingi í Kórnum í Kópavogi.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst