Í fréttatilkynningu sem send var á ritstjórn nú fyrir skömmu kemur fram að Vestmannaeyjabær og Eimskip hafi lokið og undirritað samkomulag um vetraráætlun Herjólfs. Samkomulagið gerir ráð fyrir að Vestmannaeyjabær og Eimskip skipti á milli sín 18 milljón króna kostnaði við fjórðu ferð Herjólfs þannig að Vestmannaeyjabær greiði 12 milljónir en Eimskip 6. Umfram tekjur vegna siglinga Herjólfs síðasta mánuðinn eru svo notaðar til að bæta við fjórðu ferðinni á laugardögum, fram að áramótum hið minnsta.