Sumarhátið leikskólanna var haldin á Stakkagerðistúni miðvikudagsmorguninn 18 júní s.l. Fjörið hófst með skrúðgöngu frá Barnaskólanum og var gengið undir trumbuslætti sem leið lá á Stakkagerðistún. Þegar þangað var komið settist hópurinn niður og söng nokkur lög við gítarundirleik.