Sumarstúlkur í fjörugri óvissuferð
Nú styttist Sumarstúlkukeppnina sem verður í Höllinni laugardaginn 30. maí. Alls taka 15 stúlkur þátt í keppninni að þessu sinni og standa yfir stífar æfingar undir stjórn Súsönnu Georgsdóttur.
Í hefðbundinni óvissuferð byrjuðu sumarstúlkurnar á því að fara á sjálfsvarnarnámskeið hjá �?vari sem að þeirra sögn var mjög gaman og lærdómsríkt. Eftir það lá leiðin í Sagnheima þar sem farið var í ratleik. �?ar fengu þær spurningar og áttu að finna svörin við þeim.
Eftir ratleikinn var hópnum skipt í tvennt og fór annar hópurinn á segway þar sem sumar þorðu kannski eins hratt og aðrar. Hinn hópurinn var dressaður upp í klifurgalla með tilheyrandi búnaði og tókst á við klifurvegginn hjá björgunarsveitinni. Eftir átökin skelltu stelpurnar sér í pottana á Hótel Vestmannaeyjar og tóku sig svo til fyrir glæsilegan kvöldverð að hætti Einsa Kalda. Maturinn hjá Einsa sló í gegn og stóðst væntingar og vel það að mati stelpanna sem þakka kærlega fyrir sig.
�?var Austfjörð og Karatefélag Vestmannaeyja, Sagnheimar, Segway, Björgunarfélag Vestmannaeyja, Hótel Vestmannaeyjar, Nuddstofa Sonju Ruiz og Einsi kaldi styrktu óvissuferðina.
Hér að ofan má sjá nokkrar myndir úr ferðinni.

Nýjustu fréttir

Allt undir fyrir norðan – ÍBV þarf sigur gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.