Sveit TV í 4. sæti á Íslandsmótinu í atskák
Skak Ads 20251124 190831
Hluti sveitar TV á mótinu. Ljósmyndir/aðsendar.

Íslandsmót skákfélaga í atskák fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur við Faxafen dagana 24.–25. nóvember. Alls tóku 12 sex-manna sveitir þátt í mótinu, frá átta skákfélögum, og sendu sum félög fleiri en eina sveit til keppni.

Tímamörk skákanna voru 10 mínútur á mann auk fimm sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Tefldar voru níu umferðir eftir Monrad-kerfi og stóð hver umferð í um það bil 35 mínútur.

Úrslit mótsins

Sigurvegari mótsins var A-sveit Breiðabliks, með stórmeistarann Vigni Vatnar Stefánsson á 1. borði. Sveitin vann allar sínar viðureignir og hlaut samtals 43,5 vinninga.

Í öðru sæti hafnaði A-sveit Taflfélags Reykjavíkur, sem vann átta af níu umferðum og fékk 40,5 vinninga. A-sveit Fjölnis endaði í þriðja sæti með sex sigra, eitt jafntefli og 38 vinninga.

Góð frammistaða hjá sveit TV

Sveit TV hafnaði í fjórða sæti með 12 stig — sex sigra og þrjú töp — og fékk alls 39 vinninga. Liðið stefndi hærra, en baráttan á toppnum var mjög hörð. Ungir og efnilegir hraðskákmenn efstu sveitanna skiluðu sínu vel, sem reyndist sterkustu liðunum í hag.

Sveit TV var skipuð nokkrum keppendum félagsins úr úrvalsdeild TV, auk þess sem Ægir Páll Friðbertsson og fleiri sterkir skákmenn bættust í hópinn.

Tvennir feðgar í liðinu

Í liðinu eru tvennir feðgar: Þorsteinn Þorsteinsson, liðstjóri úrvalsdeildar TV, og sonur hans Aron Ellert Þorsteinsson. Þá var Örn Leó Jóhannsson og faðir hans Jóhann Ingvarsson. Þeir hafa allir verið félagar í Taflfélagi Vestmannaeyja um árabil.

Á 1. borði fyrir TV tefldi stórmeistarinn Jóhann Hjartarson, sem stóð sig með stakri prýði líkt og aðrir liðsmenn. Liðið var mjög nálægt því að ná þriðja sætinu og vantaði ekki nema herslumuninn til að komast á verðlaunapall, segir í tilkynningu frá TV.

Jóhann Hjartarson á 1. borði í sveit TV.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.