Thelma Björk Gísladóttir, aðstoðarskólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, flutti hátíðarræðu við afhendingu Fréttapýramídanna í Eldheimum. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi þess að staldra við, sýna þakklæti og gera sýnileg þau framlög sem styrkja samfélagið til lengri tíma.
Ræðu sína hóf Thelma á orðinu „takk“ og minnti á að viðurkenning og þakklæti skipti máli, bæði fyrir þá sem fá slíkar viðurkenningar og samfélagið í heild. Hún sagði að þótt lífið væri oft á miklum hraða væru svona stundir nauðsynlegar til að rifja upp hvað það væri sem raunverulega byggði upp sterkt og samstillt samfélag.
Fréttapýramídinn væri táknrænn, að hennar mati, þar sem hann stæði á traustum grunni og minnti á seiglu, úthald og árangur sem yrði aðeins til með stöðugri vinnu. Hann minnti jafnframt á að samfélag byggðist ekki upp af sjálfu sér heldur af fólkinu sem tæki ábyrgð, sýndi samstöðu og legði sitt af mörkum – oft án þess að vera í sviðsljósinu.
Með Fréttapýramídanum hlaut skólinn viðurkenningu fyrir framlag sitt til menntunar og menntamála í Vestmannaeyjum en hann hlaut jafnframt Íslensku menntaverðlaunin 2025. Thelma lagði áherslu á að slík viðurkenning snerist sjaldnast um eitt ár heldur heildarmyndina: stöðugleika, ábyrgð og það að mæta aftur og aftur þegar á reynir.
Að lokum ræddi hún mikilvægi fyrirmynda fyrir ungt fólk og sagði að Fréttapýramídinn sendi skýr skilaboð til næstu kynslóða – að árangur byggist á vinnu, samstöðu og því að láta verkin tala. „Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið,“ sagði hún að endingu og þakkaði öllum sem standa að viðburðinum og þeim sem hafa hlotið viðurkenninguna í gegnum árin.
Hlusta má á Thelmu flytja ræðuna í innslaginu hér að neðan.