Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af ákæru um líkamsárás gegn konu sinni og uppeldisdóttur á heimili þeirra í júlí í fyrra. Manninum var gefið að sök að hafa slegið konuna einu sinni í andlitið og hrint henni í gólfið og sparkað í hana þannig að hún hlaut sjáanlega áverka. Þá var hann ákærður fyrir að hafa á sama stað ýtt við uppeldisdóttur sinni þannig að hún féll í gólfið og sparkað í hana.