Systurskipin landa fullfermi
Landad Ur Vestmannaey Ve 22 Jul
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Systurskipin úr Eyjum, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gærmorgun. Rætt er við skipstjóranna og þeir beðnir um fréttir af veiðunum á vef Síldarvinnslunnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey lét nokkuð vel af sér. „Við héldum til veiða í brælu en síðan var hið þokkalegasta veður í túrnum. Við byrjuðum á Pétursey og Vík og síðan var haldið í Meðallandsbugtina. Túrinn var síðan kláraður á Höfðanum. Meirihluti aflans var ýsa,” sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson á Bergey var hinn brattasti. „Þetta gekk alveg skrugguvel. Við byrjuðum á Pétursey og Vík en þar var heldur rólegt. Síðan var haldið í Meðallandsbugtina og veitt í grennd við loðnubátana. Túrinn var kláraður á Ingólfshöfðanum en þar var mjög góð veiði og á þeim slóðum var töluvert af loðnu á ferðinni. Aflinn var mest ýsa og dálítið af þorski með. Við vorum að veiðum í þokkalegasta veðri en síðan brældi,” sagði Jón. Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.