Kvennalið ÍBV leikur síðasta æfingaleik sinn fyrir Íslandsmótið á morgun, laugardag. Þá tekur liðið á móti nýliðum í Pepsídeild kvenna, Selfossi en leikur liðanna hefst klukkan 11:45 á Helgafellsvellinum. Stuðninsgmenn liðsins eru hvattir til að kíkja á stelpurnar og sjá hvernig liðið kemur undan vetri.