Pétur átti eina dóttur sem hann elskaði mjög mikið. Pétur átti líka stórt og arðbært fyrirtæki. Pétri líkaði ekki alskostar vel við nýja tengdasoninn en fann líka að dóttir hans tók það nærri sér. Hann ákvað því að brjóta odd af oflæti sínu og taka unga manninn inn í fjölskylduna með stæl. Hann biður unga manninn að koma að máli við sig sem hann og gerir. Þar tilkynnir Pétur honum að hann hafi tekið ákvörðun um að gefa honum helminginn af fyrirtækinu sínu til að sína honum að hann sé raunverulega velkominn í fjölskylduna.