Þetta er mjög einfalt og enginn ómöguleiki
Grímur Gíslason, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Eyjum.

Aðsend grein

Grímur Gíslason

Vegna orða og efasemda Páls Magnússonar – Ef að hugur og vilji eru til staðar þá er leiðin greiða og allir velkomnir.

Það kom mér sannarlega á óvart að sjá viðbrögð Páls Magnússonar við þeim orðum sem ég lét falla í samtali við Eyjafréttir um að prófkjör gæti verið góð leið til að sameina sjálfstæðismenn í Eyjum á ný. Páll gerir því skóna að það sé nú ekki alveg eins einfalt og ég hafi látið í veðri vaka og vitnar svo til atburða 8 ár aftur í tímann í samhengi við það.

Ég er ekki viss um að það sé besta leiðin til að sætta sjónarmið að dvelja mikið við löngu liðin átök eða deilur. Reynslan hefur kennt mér að vænlegra er að lifa í núinu og horfa frekar til framtíðar en að dvelja bitur við löngu liðna tíma. Lífið á það til að henda í fólk alls konar verkefnum og þeim verkefnum geta vissulega fylgt ósamlyndi og átök en  ef að fólk ætlar að dvelja við slíkt og velta sér endalaust upp úr því sem liðið er má ekki búast við að að árangur verði mikill eða merkilegur til framtíðar.  Reynslan hefur vonandi þroskað mig og bætt og amk sé ég sólarglætu  kringum prófkjörið sem mætti nýta til sameiningar sjálfstæðismanna í Eyjum. Mér hugnast illa að eyða orkunni í strögl um löngu liðinn tíma en kýs frekar að leita lausna og horfa til framtíðar.

Það spilar enginn með ÍBV og Val á sama tíma

Hvort sem er í stjórmálum, íþróttum eða öðru sem við tökum okkur fyrir hendur í lífinu þá gengur það illa upp að ætla að þjóna fleirum en einum herra á sama tíma. Páll, sem er harður stuðningsmaður ÍBV og mikill áhugamaður um íþróttir, veit vel að það gengur ekki upp að sami leikmaðurinn spili með tveimur liðum á sama tíma. Hann veit líka að leikmenn geta skipt um félag og ef rétt er að öllu staðið verða þeir þannig löglegir leikmenn annars liðs. Samningsbundinn leikmaður ÍBV fer ekki bara á æfingu hjá Val, kemst þar í byrjunarlið og spilar með þeim næsta leik. Ef þannig er staðið að málum er leikmaðurinn ekki gjaldgengur til að spila,  en það má auðvitað skipta um félag og ganga til liðs við annað lið, ef það er bara gert á eðlilegan hátt og þar til gerðum reglum fylgt.

Þannig er þetta líka í stjórnmálunum. Stjórnmálamenn geta skipt um flokka en það gengur illa upp að vera í tveimur stjórnmálaflokkum á sama tíma. Slíkt held ég að liggi í augum uppi og það vita allir sem vilja vita. Það þarf yfirleitt engann að reka úr stjórnmálaflokki því að hver og einn rekur sig sjálfur úr honum ef að hann skiptir yfir í annan flokk eða stjórnmálaafl.

Bæjarfulltrúar eru persónukjörnir

Bæjarfulltrúar, líkt og þingmenn, hljóta persónukjör í kosningum og eru því engu bundnir nema samvisku sinni. Mörg dæmi eru um það á alþingi að þingmenn hafa skipt um flokka. Hafa verið kjörnir á þing af lista einhvers flokks en skipta svo yfir í annan, jafnvel skömmu eftir kosningar, og verða þá þingmenn þess flokks sem þeir ganga til liðs við. Sama getur átt sér stað í bæjar- og sveitarstjórnum. Kjörnir fulltrúar geta gengið til liðs við aðra flokka en þeir eru kjörnir fyrir og ekkert getur í sjálfu sér komið í veg fyrir slíkan gjörning. Það eru bara blákaldar staðreyndir og það regluverk sem við búum við.

Páll þekkir það öðrum betur

Páll Magnússon þekkir það líklega öllum öðrum betur hvernig hægt er að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, gefa kost á sér í prófkjöri og ná árangri. Ef mig brestur ekki minni gekk Páll í Sjálfstæðisflokkinn í aðdraganda alþingiskosninga  2016, í þeim tilgangi að vera gjaldgengur til að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins í Suðurkjördæmi, sem hann og gerði.

Þar vann hann glæsilegan sigur, felldi sitjandi oddvita og varð oddviti flokksins í kjördæminu. Þeim árangri náði hann þrátt fyrir stutta veru í Sjálfstæðisflokknum og ekkert starf innan flokksins fram að því.

Páll hefur því reynt á eigin skinni hversu einfalt það er að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, gefa kost á sér í prófkjöri í kjölfarið og ná árangri. Hann hefur líka reynsluna af því hversu vel er tekið á móti nýju fólki sem gengur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og hvaða traust það getur öðlast.

Þannig hefur það alltaf verið og verður vonandi áfram um ókomna tíð.

Prófkjörið er góð leið til sátta og sameiningar

Það sem ég sagði, um að prófkjör gæti  verið leið til að sameina sjálfstæðismenn í Eyjum á ný, var ekki bara sagt af góðum hug. Það var sagt af heilum hug og eindregnum  vilja til að svo geti orðið. Faðmur Sjálfstæðisflokksins er opinn öllum þeim sem vilja ganga til liðs við hann. Öllum sem eru flokksbundnir og öllum þeim sem ganga til liðs við flokkinn stendur opin leið til að taka þátt í prófkjöri flokksins, hvort sem er með framboði eða til að kjósa í því. Það er einfalt að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, rafrænt á xd.is er hægt að klára það á innan við mínútu, en eins og í íþrótttunum þá spila leikmenn ekki fyrir tvö lið á sama tíma.

Faðmurinn er opinn – viljinn er allt sem þarf

Faðmurinn er því opinn og allir sem telja sig geta átt skoðanalega samleið með okkur eru velkomnir í liðið.  Flestir þeirra sem sögðu skilið við Sjálfstæðisflokkinn í bæjarmálum fyrir 8 árum höfðu starfað innan flokksins í fjölda ára og ég trúi því að það fólk sé enn með sömu skoðanir og hugsjónir og áður og geti því auðveldlega fundir sér farveg með Sjálfstæðisflokknum á ný.

Ég stend því einarðlega við það sem ég sagði í samtali við Eyjafréttir. Það eru allir velkomnir í okkar hóp og það á jafnt við um Pál Magnússon sem og aðra. Á því eru engir annmarkar, óyfirstíganlegir þröskuldar eða einhver ómöguleik,i ef einlægur vilji og hugur er til staðar.

Viljinn er allt sem þarf.

Grímur Gíslason, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.